Viðhald á forvinnslulínu í móttöku- og flokkunarstöð
Viðhald stendur yfir á nýju vinnslulínunni í móttöku-og flokkunarstöð SORPU sem stendur til sunnudagsins 13. desember. Íbúar í Garðabæ, Hafnarfirði, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi eru því beðnir um að henda ekki plasti í pokum með almenna sorpinu eins og venjulega meðan á þessu stendur, heldur fara með það í grenndargáma eða á endurvinnslustöðvar.
SORPA biðst velvirðingar á að þeim vandræðum sem þetta kann að valda.