Viltu rækta þitt eigið grænmeti?
Er ekki grænupplagt að rækta eigið grænmeti í sumar? Úthlutun og greiðsla fyrir garðlönd fer fram í þjónustuveri Hafnarfjarðar.
Hafnarfjarðarbær býður bæjarbúum til útleigu garðlönd í
Vatnshlíð við Kaldárselsveg. Um er að ræða 125 garða, stærð garðanna
er um 40 fermetrar. Leigjendur garða 2015 hafa forgang á leigu sömu garða og í fyrra, ef greitt er fyrir 1. maí. Leigugjaldið 2016 fyrir hvern garð er 4.207 krónur.
Hafnarfjarðarbær sér um ýmsa verkþætti varðandi garðlöndin:
- Yfirfara merkingar
- Plæging/tæting á garðlöndum
- Hreinsa upp stórgrýti og fjarlægja úr görðunum
- Fylla reglulega á vatnskör sem staðsett eru við garðanna
- Á tveggja til þriggja ára fresti er dreift hrossatað í garðanna samhliða plægingu
Garðlöndin eru plægð á tímabilinu 5. – 15. maí ár hvert fer eftir veðurfari hverju sinni.
Úthlutun garðlanda og greiðsla fyrir garða fer fram í Þjónustuveri Hafnarfjarðar á jarðhæð að Strandgötu 6. Leigutakar skulu passa vel upp á það að þeir séu í réttum garði miðað við númeraúthlutun samkvæmt teikningu.
Er ekki grænupplagt að rækta eigið grænmeti í sumar? 🙂