Would you like to have a stall or an act on the 17th of June?
Applications for the sales tent and ideas for entertainment must be submitted no later than 3 p.m. on Friday, 17th May.
Viltu vera með söluhús á 17. júní?
Hafnarfjarðarbær og þjóðhátíðarnefnd óska eftir áhugasömum söluaðilum til þess að leigja söluhús á 17. júní. Sérstaklega er leitast eftir þeim sem hyggjast selja mat og drykk. Söluleyfið gildir mánudaginn 17. júní þar sem hátíðarhöldin fara fram í Hafnarfirði. Með söluleyfi fylgir sölukofi og er dregið um staðsetningu söluaðila.
Viltu vera með skemmtiatriði á 17. júní?
Samhliða leit að áhugasömum söluaðilum á 17. júní er óskað eftir skemmtiatriðum á sjálfan þjóðhátíðardaginn. Í dagskránni er gert ráð fyrir barna- og fjölskylduskemmtunum víðsvegar um bæinn, leiktækjum og ýmsum uppákomum. Lumar þú að hugmynd að skapandi og skemmtilegu atriði eða uppákomu sem glatt getur huga og hjörtu Hafnfirðinga og vina Hafnarfjarðar?

Frestur fyrir umsóknir og innsendar hugmyndir
Umsóknum um söluhús og hugmyndum að skemmtiatriðum ber að skila eigi síðar en föstudaginn 17. maí kl. 15 á netfangið: ith@hafnarfjordur.is. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastýra 17. júní, Tinna Dahl Christiansen, í gegnum netfangið: tinnadahl@hafnarfjordur.is