Virkjum ungmennin okkar – samstarf við Dale Carnegie
Hafnarfjarðarbær hefur gert samning við fyrirtækið Dale Carnegie um námskeið fyrir 13-15 ára ungmenni í Hafnarfirði. Samningur sveitarfélagsins hljóðar upp á 30.000.- kr afslátt af námskeiðsgjaldi en auk þess er hægt að nota frístundastyrk upp í greiðslu.
Hafnarfjarðarbær hefur gert samning við fyrirtækið Dale Carnegie um námskeið fyrir 13-15 ára ungmenni í Hafnarfirði. Samningur sveitarfélagsins hljóðar upp á 30.000.- kr afslátt af námskeiðsgjaldi en auk þess er hægt að nota frístundastyrk upp í greiðslu.

Er barnið þitt klárt fyrir haustið?
Dale Carnegie býður meðal annars upp á námskeið fyrir ungt fólk sem vill auka leiðtogafærni sína. Námskeiðið hér í Hafnarfirði hefst 1. október, stendur yfir í átta vikur og hittist hópurinn einu sinni í viku. Verð á námskeiði er 109.000.- en 79.000.- til hafnfirskra barna. 25.000 ef frístundastyrkur er að fullu nýttur upp í greiðslu á námskeiði.
Virkjum kraftinn í unga fólkinu okkar!
Það býr kraftur í ungu fólki. Orka sem þarf beisla og beina í réttan farveg. Á þessu námskeið Dale Carnegie leggja nemendur, með aðstoð sérfræðinga, grunninn að sinni eigin stefnu fyrir framtíðina. Ungmennin þjálfast í að líta á áskoranir sem tækifæri og bæta hæfni sína og viðhorf. Þátttakendur á námskeiði fara út fyrir þægindahringinn, reyna á sig og styrkja þannig sjálfsmyndina. Upplifa jákvæðar tilfinningar og sigra og auka þannig sjálfstraustið sem hjálpar þeim að verða öflugri leiðtogar í eigin umhverfi og lífi. Þau læra aðferðir til þess að styrkja sambönd og samvinnufærni í raunverulegum aðstæðum. Netheimar geta verið skemmtilegir en enginn kemst vel í gegnum lífið nema að eiga samskipti, auglitis til auglitis við aðra. Aðferðir til að auka jákvæðni og gleði. Unga fólkið þjálfast í því að tala fyrir fram hóp af fólki og verður betri í tjáningu. Þau læra hvað hrós og hvatning getur haft jákvæð áhrif á bæði á þau sjálf og aðra.
Hafnarfjarðarbær hvetur foreldra og forráðamenn til að nýta sér tækifærið og mæta með börnum sínum á kynningarfund í Víðistaðaskóla þriðjudaginn 10. september kl. 17:30.
Skráning á kynningarfund Here
Course registration Here