The spring work has begun – street sweeping started today.

News

Sópun á aðalgötum í Hafnarfirði hófst í dag og mun vorsópun innan hverfa hefjast á morgun. Vorsópun stendur yfir dagana 1. – 29. apríl. Gangstéttir verða sópaðar á tímabilinu 1.apríl – 10. maí, eyjaþvottur mun fara fram dagana 7. – 13. apríl og sópun og þvottur bílastæða dagana 25. – 30. apríl. Vatnsþvottur á aðalgötum er ráðgerður í byrjun maí. Íbúar eru hvattir til virkrar þátttöku.

Bænum skipt upp í 14 hverfi

Bænum er sem fyrr skipt upp í 14 hverfi og eru hverfin skiltuð upp degi fyrir sópun með tilkynningu um fyrirhugaða sópun. Vorsópun hefst í miðbæ Hafnarfjarðar föstudaginn 1. apríl og lýkur með sópun gatna á Völlunum föstudaginn 29. apríl.

Tökum virkan þátt og tryggjum góða sópun!

Við biðjum íbúa um að taka virkan þátt í vorsópun þannig að árangurinn verði sem bestur. Nauðsynlegt er að hafa götur auðar af bílum þann dag sem sópað er þannig að mögulegt sé að sópa kantanna á milli. Íbúar og starfsfólk fyrirtækja í Hafnarfirði geta samhliða nýtt tækifærið og sópað í kring hjá sér. Þannig verður heildin miklu fallegri ásýndar.

Hverfaskipting sópunar

Starfað er eftir ákveðinni verkáætlun sem felur í sér sópun á öllum hverfum á tímabilinu 1. apríl – 29. apríl. Sjá má áætlun á mynd hér fyrir neðan og geta íbúar miðað sópun á plönum sínum og í nærumhverfi við þessa áætlun. Verkáætlun er sett fram með fyrirvara um breytingar sem einna helst geta orðið vegna veðurs (frost) og seinkun hjá verktaka sem sér um sópunina.

Verkáætlun á PDF formi

Sendu okkur ábendingu um það sem betur má fara

We welcome all suggestions! Is there anything you feel needs to be improved in the environment, the town's services, or would you like to bring to our attention? We welcome all feedback, large or small. Send us a suggestion í gengum ábendingagátt bæjarins. 

Suggestion portal