HEIMA-hátíðin snýr aftur á síðasta degi vetrar

Það er orðin kær hefð í Hafnarfirði að kveðja veturinn með HEIMA-hátíðinni. Hlýlegri og einstakri tónlistarhátíð í hjarta bæjarins. Hátíðin fer fram 22. apríl og býður upp á einstaka nálægð milli tónlistarfólks og gesta í notalegu og persónulegu umhverfi, nefnilega heima í stofu hjá Hafnfirðingum.

Á HEIMA opna íbúar í miðbænum heimili sín fyrir gestum og bjóða tónlistina inn í stofurnar. Í hverju húsi koma fram tveir mismunandi listamenn eða hljómsveitir yfir kvöldið og skapast þannig sérstök stemning sem aðeins HEIMA getur boðið upp á. Auk heimilanna verða Fríkirkjan í Hafnarfirði and Town Cinema einnig meðal tónleikastaða.

The performers at HEIMA this year are:

  • Mugison
  • Stína Ágústsdóttir
  • Þau
  • Sváfnir Sigurðarson
  • Páll Óskar og Benni Hemm Hemm
  • Skítamórall
  • Kusk og óviti
  • Elínborg (Færeyjar)
  • Oyama
  • Kristmundur Axel
  • Ukulellur
  • Tríó Bjössa Thors
  • Klara Einars
  • Pétur Ben
  • Dj Andrea Jóns

Hátíðin hefst kl. 14 í Ægir Brugghús þar sem afhent verða armbönd og dagskrá. Þar verður einnig hægt að njóta góðrar stemningar og skála í sérbrugguðum HEIMA-bjór. Fyrstu tónleikarnir hefjast síðan kl. 20 að lokinni formlegri setningu í Fríkirkunni kl. 19:30 allt til kl. 23. Þá tekur Bæjarbíó við og svo eftirpartý í Ægi þar sem Andrea Jóns sér um dansstemninguna langt fram á nótt. HEIMA-hátíðin er sannkölluð veisla þar sem tónlist, heimilisleg hlýja og samvera mætast á einstakan hátt. Þetta er kvöld til að njóta, rölta á milli húsa og upplifa fjölbreytta tónlist í hjarta Hafnarfjarðar.

Suggestion portal