Afternoon Tones – Quartet by Albert Cirera
On International Jazz Day, Thursday 30 April at 6 pm, the quartet of the Spanish saxophonist Albert Cirera will perform at the next Afternoon Tones in Hafnarborg. Albert Cirera has…
Á Alþjóðlega jazzdaginn, fimmtudaginn 30. apríl kl. 18, mun kvartett spænska saxófónleikarans Alberts Cirera koma fram á næstu Síðdegistónum í Hafnarborg.
Albert Cirera hefur á undanförnum árum verið virkur á evrópsku spunatónlistarsenunni, tekið þátt í fjölda upptaka og leikið á hátíðum og tónleikum í Evrópu og víðar. Hann hefur starfað og búið í borgum á borð við Barcelona, Lissabon og Kaupmannahöfn og unnið með fjölbreyttum hópi tónlistarmanna úr ólíkum áttum.
Á efnisskránni verða djassstandardar í bland við tónsmíðar eftir Cirera, þar sem rými er fyrir spuna og frjáls samskipti tónlistarmannanna. Ásamt Albert, sem leikur á tenór-saxófón, leika þeir Andrés Þór á gítar, Snorri Skúlason á kontrabassa og Scott McLemore á trommur.
The concert lasts for about an hour and is free of charge.
Síðdegistónar í Hafnarborg eru styrktir af Hafnarfjarðarbæ og Menningarsjóði FÍH.