Rúna: font – opening
On Thursday 7th May from 4-6 pm, we invite you to attend the opening of the exhibition Rúna:letur at Hafnarborg, in connection with Design March…
Þessi röð pennateikninga á A4 pappír sýnir blómamótíf sem unnin eru með nákvæmri línuvinnu og þéttum krossskyggingum. Formin koma smám saman í ljós línu fyrir línu og punkt fyrir punkt, en það krefst mikillar einbeitingar og þolinmæðis.
Verkin urðu til yfir vetrartímann og endurspegla kyrrð og hægan takt. Vinnuferlið er meðvitað tímafrekt. Þessi hægagangur er nauðsynlegur því hann gerir listamanninum kleift að sökkva sér alfarið ofan í teikninguna. Með þessari einbeittu endurtekningu verður tíminn sjálfur að rými fyrir fortíðarþrá.
Eftir því sem teikningarnar þróast verða þær að leið inn í minningar. Þrá eftir sumrinu, hlýju þess og lífskrafti, kemur smám saman upp á yfirborðið. Séð frá sjónarhóli flutninga snúa verkin aftur til Póllands sem tilfinningalegt landslag. Þau eru mótuð af persónulegri sögu og árstíðabundnum hrynjanda. Blómin svífa á mörkum þess að blómstra og fölna. Þau bera með sér tilfinningu fyrir heimþrá og rótleysi og tjá hljóðláta löngun til að tengjast aftur heimkynnunum.
Marcelina Maria Kolek (Maria K.) er listamaður sem lagði stund á nám við Fine Arts School í Rzezów og útskrifaðist þaðan árið 2016. Í námi sínu tileinkaði hún sér þekkingu og færni í sjónrænum listum, almennri fagurfræði og sköpun. Með þennan sterka grunn í farteskinu lá leið hennar , lá leið hennar í nám í grafískri hönnun við Wyższa Szkoła Technologii Informatycznych í Katowice, einum virtasta skóla Póllands í hönnun og upplýsingatækni
Marcelina er ástríðufullur listamaður og er það eitt af hennar helstu aðalsmerkjum í blýantsteikningum hennar af alls kyns persónum og fígúrum, þar sem hún gefur sér lausan tauminn og kafar djúpt í tilfinningar og frásagnalist og blandar þessu saman á sinn einstaka hátt. Þessi ástríða hennar fyrir slíkum teikningum skilar sér í dýpt og persónuleika í þeim hönnunarverkefnum sem hún tekur sér fyrir hendur og aðgreinir hana á þann hátt að í verkum hennar getur fólk fundið tengingu við sjálft sig, fundið fyrir þeim mannlega þætti sem er gegnumgangandi í hennar verkum.
Marcelina er ekki hrædd við að gera tilraunir í sinni list og nálgast hvert verkefni með forvitnina að vopni og þörf fyrir að láta reyna á hversu langt er hægt að komast í listsköpun sinni. Í gegnum árin hefur notað fjölmargar tegundir miðla og form, alltaf skorað á sjálfa sig, lært, þroskast og betrumbætt en þó ekki á kostnað þess að prufa eitthvað nýtt. Hún er þekkt fyrir að gefa hugmyndafluginu lausan tauminn, auga fyrir smáatriðum og fjölbreytta kunnáttu í bæði listsköpun og hönnun. Marcelina kemur að borði með ferskt sjónarhorn í hverju verkefni.
Curator: Elvar Gunnarsson
Sérstök sýningaropnun verður fimmtudaginn 7. maí frá 18:00-20:00 og þú ert velkomin !
Other opening times:
Fös. 8. maí 13:00 – 18:00
Lau. 9. maí 13:00 -17:00
Sun. 10. maí 14:00 – 17:00
LG // Litla Gallerý is supported by the Culture and Tourism Committee.
Hafnarfjörður's due to the event
—————————–
This series of pen drawings on A4 paper explores the motif of flowers through detailed line work and dense cross-hatching. Each form emerges slowly—line by line, mark by mark—demanding intense focus and sustained attention.
Created during winter, the works embody stillness, introspection, and the quiet passage of time. The process is deliberately time-consuming and requires a great deal of hard work; this slowness becomes essential, allowing the artist to fully immerse in the act of drawing. Through this focused repetition, time itself transforms into a space for nostalgia.
As the drawings develop, they become a way of holding onto memory. A longing for summer—its warmth, softness, and vitality—gradually surfaces. From the perspective of emigration, the works return to Poland as an emotional landscape, shaped by personal history and seasonal rhythm.
The flowers, suspended between blooming and fading, carry a sense of nostalgia and displacement, expressing a quiet, persistent desire to reconnect with the feeling of home.
Marcelina Maria Kołek (Maria K.)is a seasoned graphic designer with a rich creative background rooted in both technical expertise and artistic formation. She began her journey at the Fine Arts School in Rzeszów,(2016) where she developed a strong foundation in visual arts, aesthetics, and hands-on craftsmanship. Building on this creative foundation, she went on to earn her degree in graphic design from the Wyższa Szkoła Technologii Informatycznych in Katowice,(2021) one of Poland’s respected institutions for information technology and design.
Beyond her formal education, Marcelina possesses a deep passion for drawing expressive characters—a pursuit that allows her to explore emotion, storytelling, and dynamic form. This fascination with character art infuses much of her design work with personality and narrative depth, setting her apart as a visual thinker who understands how to connect with audiences on a human level.
With a substantial reservoir of experimental experience, she approaches each project with curiosity and a willingness to push creative boundaries. Over the years, she has explored a wide range of techniques, mediums, and stylistic approaches, continuously refining her craft while staying open to new artistic challenges. Her work reflects a thoughtful balance between form and function, shaped by a background that merges classical art education with modern design methodologies.
Known for her imaginative approach, technical versatility, and keen eye for detail, Marcelina brings a unique perspective to every project—rooted in tradition, driven by experimentation, and always forward-looking.
Curator: Elvar Gunnarsson
There will be a special exhibition opening on Thursday, Mai 7th from 18:00-20:00 and you are welcome!
Other opening hours
Fri 8th may 13:00 – 18:00
Sat 9th may 13:00 – 17:00
Sun 10th may 14:00 – 17:00
LG // Litla Gallerý is sponsored by the Culture and Tourism Committee of Hafnarfjörður for this event.