Þriðjudaginn 12. maí kl. 19-21 verður boðið upp á hugleiðslu undir leiðsögn Jennyar Huldu- Aradóttur, sem er einnig þekkt sem Ravi, innan um verk Rögnu Fróða á sýningunni Bergmáli. Í gegnum hugleiðslu, söng, trommur og tóna mun Ravi bjóða gestum í innra ferðalag innblásið af list Rögnu og töfrum skógarins. Mælt er með að gestir komi með púða og teppi og láti fara vel um sig í rýminu.

In the exhibition, Ragna Fróða invites us into a magical world of patterns, colours, shapes and textures. Ragna's world is at once familiar and foreign, nostalgic and innovative. The starting point for the works in the exhibition is ink drawings, created in a flow state and in direct dialogue between the subconscious and the hand. Through a multi-layered working process, the uninhibited line from the handmade drawing is transformed into digitally embroidered works that appear on the border between the abstract and the figurative. Ragna's work is about the creative process itself – the interplay of colours, textures and narratives inherent in the patterns and symbols of the textile. By combining traditional craftsmanship with contemporary technology, Ragna seeks to expand the boundaries of craft, textile design and fine art.

Jenny Huldu- Aradóttir hefur lagt stund á kennslufræði, jógafræði og shamanískt nám í áratugi og leitast við að sameina ólíkar nálganir í eina heild. Hún hefur ferðast um heiminn, hitt ólíka menningarhópa og kennara úr ýmsum áttum sem eiga það sameiginlegt að styðja við mannkyn á umbreytingartímum. Ravi er nýlega komin frá Amazon-skóginum þar sem hún dvaldi í ellefu mánuði með frumbyggjum af ættflokki Huni Kuin. Þar fékk hún einstakt tækifæri til að tengjast ævafornri visku skógarins og lifa og læra með fólki sem kallað hefur verið verndarar og boðberar náttúrunnar. Þá hefur Ravi undanfarin ár tileinkað vinnu sína, nám og líf til uppbyggingar samfélaga sem heiðra náttúruna, visku hennar og anda sem býr allt um kring og hið innra.

Free admission – all are welcome.

Suggestion portal