Skipulagsbreyting – Breiðhella 18 og 20
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi lóðanna Breiðhellu 18 og 20, Hafnarfirði. Deiliskipulagsbreytingin felst í því að lóðirnar að Breiðhellu 18 og 20 sameinast í eina lóð, grunnflötur byggingarreits stækkar, hámarkshæð bygginga eykst og aðkomur að lóð verða tvær í stað einnar. Frestur til athugasemda er 11. apríl 2017
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi lóðanna Breiðhellu 18 og 20, Hafnarfirði.
Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 13. desember 2016 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðanna að Breiðhellu 18 og 20 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Um er að ræða breytingu á deiliskipulaginu “Hellnahraun 2. áfangi, staðfest 11.04. 2011.
Deiliskipulagsbreytingin felst í því að lóðirnar að Breiðhellu 18 og 20 sameinast í eina lóð, grunnflötur byggingarreits stækkar, hámarkshæð bygginga eykst og aðkomur að lóð verða tvær í stað einnar.
Tillagan verður til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 8-10 og hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu Norðurhellu 2, frá 28. 02. til 11. 04. 2017.
Einnig er hægt að skoða skipulagstillöguna HÉR
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 11. 04. 2017. Þeir sem eigi gera athugasemdir við breytinguna innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni.
Nánari upplýsingar eru veittar á umhverfis- og skipulagsþjónustu.