Bæjarstjórn einhuga í stuðningi við aukna þjónustu Strætó bs.
Stjórn Stræó BS samþykkti í síðustu viku tillögu sem felur í stóraukna þjónustu við farþega Strætó bs. Þar ber hæst að fella niður sumaráætlun, lengja akstur á kvöldin, gera tilraun með næturstrætó, auk annarra breytinga á einstaka leiðum.
Stjórn Stræó BS samþykkti í
síðustu viku tillögu sem felur í sér stóraukna þjónustu við farþega Strætó
bs. Þar ber hæst að fella niður sumaráætlun, lengja akstur á
kvöldin, gera tilraun með næturstrætó, auk annarra breytinga á einstaka
leiðum. Stefnt er að því að breytingarnar taki gildi um áramótin en
endanleg ákvörðun er í höndum Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
(SSH). Fái tillagan samþykki SSH verður ekið á næturnar um helgar á
leiðum 1 til 6. Ennþá á eftir að klára útfærsluatriði eins og hvort vagnarnir
keyri leiðirnar á hálftíma fresti eða klukkutíma fresti og hversu langt fram
á nótt.
Hafnarfjörður Town Council
bókaði í gær einróma og afgerandi stuðning við tillögur stjórnar Strætó
bs, „Bæjarstjórn Hafnarfjarðar styður eindregið tillögur stjórnar
Strætó bs. um aukna þjónustu, eins og þeim er lýst í forsendum fjárhagsáætlunar
sem samþykktar voru þann 25. ágúst sl. og vísað til umfjöllunar á
eigendavettvangi Strætó bs.“ Bókunin var lögð fram sameiginlega af fulltrúum
allra flokka í bæjarstjórn og ljóst að tillaga stjórnar Strætó BS fær fullan
stuðning í Hafnarfirði.
Forseti bæjarstjórnar Guðlaug
Kristjánsdóttir, sem jafnframt er fulltrúi bæjarins í stjórn Strætó, var ánægð
með þann einhug sem ríkir um málið í bæjarstjórn. „Ég er ánægð með þessa
samstöðu og framsýni hjá okkur Hafnfirðingunum enda mun þetta þýða aukna
þjónustu fyrir bæjarbúa.“
Stjórn SSH hittist 4. september
og kemur þá í ljós hvort tillaga stjórnar Strætó bs hlýtur brautargengi.