Tillögur að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar að Austurgötu 36
Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 03.10.2017 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar að Austurgötu 36 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Jafnframt verður tillagan grenndarkynnt. Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi Hafnarfjörður miðbær.

Niðurrif núverandi húss hefur verið heimilað. Í deiliskipulagsbreytingunni felst að lóðarmörk við götu verða færð til þannig að þau verði samsíða götulínu, lóðarstærð minnkar því lítilsháttar. Jafnframt er byggingarreitur stækkaður og lagðar byggingarlínur fyrir nýtt hús á lóðinni. Mænishæð húss hækkar og nýtingarhlutfall lóðarinnar einnig.
Tillagan verður til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 8-10 og hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu Norðurhellu 2, frá 01.11. til 13.12. 2017.
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til Umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 13.12. 2017. Þeir sem eigi gera athugasemdir við breytinguna innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni.
Hér er hægt að skoða skipulagsbreytingar Teikning 1 Teikning 2
Nánari upplýsingar eru veittar á umhverfis- og skipulagsþjónustu.