Dagur leikskólans 6. febrúar

News

Þann 6. febrúar nk. verður dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum Hafnarfjarðar í 11. sinn. Í tilefni dagsins munu leikskólarnir halda upp á daginn með ýmsu móti.

Þann 6. febrúar nk. verður dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum
Hafnarfjarðar í 11. sinn. Í tilefni dagsins munu leikskólarnir halda upp á
daginn með ýmsu móti.

Þennan dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar
leikskólakennara fyrstu samtök sín. Í tilefni af þessum degi hafa leikskólar
landsins haldið upp á daginn með margbreytilegum hætti og þannig stuðlað að
jákvæðri umræðu um leikskólastarfið. Leikskólarnir eru hvattir til þess að
vekja sérstaka athygli á því mikilvæga starfi sem á sér stað innan veggja
leikskólanna, því um er að ræða afar merkilegan dag. Við bjóðum góðan dag alla
daga. Þessi fallega og hlýja kveðja undirstrikar þann anda sem ríkir í starfinu
sem fram fer í leikskólum landsins alla daga þar sem börn með ólíkar og
fjölbreyttar þarfir sem ríkir í skólastarfinu alla daga.

Suggestion portal