A varied programme during the winter holiday
Fjölmargt verður í boði fyrir alla fjölskylduna í vetrarfríinu; smiðjur, föndur, spil og litir, ratleikir, frítt í sund og margt, margt fleira.
Vetrarfrí verður í grunnskólum Hafnarfjarðar mánudaginn 26. og þriðjudaginn 27. febrúar og af því tilefni er frítt í sund fyrir börn og fullorðna þá daga í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug og Sundhöll Hafnarfjarðar.
Port city býður börnum á grunnskólaaldri í vetrarfríi að koma og taka þátt í skemmtilegum og skapandi listasmiðjum á vegum safnsins. Fyrri smiðjan fer fram föstudaginn 23. febrúar kl. 13 – 15 en seinni smiðjan fer fram mánudaginn 26. febrúar kl. 13 – 15. Börnin geta komið í fylgd foreldra og eins og alltaf er ókeypis aðgangur að smiðjunum og safninu sjálfu. Listasmiðjan fer fram í Apótekinu, sal á fyrstu hæð safnsins og leiðbeinandi er Irene Hrafnan.
Við bjóðum grunnskólabörn í Hafnarfirði sérstaklega velkomin á Hafnarfjörður Library í vetrarfríinu. Á barnadeild verður hægt að föndra, spila og lita alla dagana en einnig verður boðið upp á sögustund, bíósýningar og föndur með sérstakar tímasetningar.
Á Hafnarfjörður Museum of Local History verður hægt að taka þátt í skemmtilegum og fróðlegum ratleik fyrir fjölskylduna sem leiðir gesti safnsins um safnið.
Föstudagur 23. febrúar
- Kl. 13-15 LISTASMIÐJA í Hafnarborg – Furðuform í þrívídd
Við rannsökum form og liti, ljós og skugga og veltum fyrir okkur gagnsæjum formum og möguleikum þeirra.
Laugardagur 24. febrúar
- KL. 11-17 RATLEIKUR um Byggðasafnið
Skemmtilegur og fróðlegur ratleikur fyrir fjölskylduna sem leiðir gesti um safnið. - KL. 13 SÖGUSTUND á Bókasafni Hafnarfjarðar
Lesin verður saga sem hentar börnum á aldrinum 4-8 ára.
Sunnudagur 25. febrúar
- KL. 11-17 RATLEIKUR um Byggðasafnið
Skemmtilegur og fróðlegur ratleikur fyrir fjölskylduna sem leiðir gesti um safnið.
Mánudagur 26. febrúar
- KL. 6:30-21 FRÍTT Í SUND í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug og Sundhöll
- KL. 11 BÓKASAFNSBÍÓ á Bókasafni Hafnarfjarðar
Kvikmyndin Níu líf verður sýnd í fjölnotasal bókasafnsins. - Kl. 13-15 LISTASMIÐJA í Hafnarborg – Byggingarlist-tilraunastofa
Við skoðum hús og form þeirra og leikum okkur með að snúa uppá fyrirfram gefnar hugmyndir. - KL. 14-16 SLÍMGERÐ á Bókasafni Hafnarfjarðar. Við tökum þátt í slímæðinu og útbúum slímverksmiðju. Allt efni á staðnum.
Þriðjudagur – 27. febrúar
- KL. 6:30-21 FRÍTT Í SUND í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug og Sundhöll
- KL. 11 BÓKASAFNSBÍÓ á Bókasafni Hafnarfjarðar
Kvikmyndin The Lego Batman Movie verður sýnd. - KL. 14-16 FUGLAFÓÐURSGERÐ á Bókasafni Hafnarfjarðar
Föndrum fuglafóðrara sem hægt er að hengja í tré.