Menningarstyrkir afhentir til að auðga listalíf bæjarins
Menningar- og ferðamálanefnd veitti styrki til verkefna og viðburða sem tengjast Hafnarfirði með einum eða öðrum hætti síðasta vetrardag.
Menningar- og ferðamálanefnd veitti styrki til verkefna og viðburða við hátíðlega athöfn í Hafnarborg síðasta vetrardag. Tuttugu og tvö verkefni hlutu styrk að þessu sinni; einstaklingar, menningarhópar eða samtök sem eiga öll það sammerkt að tengjast Hafnarfirði með einum eða öðrum hætti.
Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar verða nú afhentir tvisvar sinnum á ári til aðila og verkefna sem líkleg eru til að auðga og dýpka enn frekar listalíf bæjarins. Úthlutun styrkja Hafnarfjarðarbæjar byggir á mati á umsóknum. Menningarviðburðir, listamenn, félagasamtök eða stofnanir sem sækja um styrk verða að tengjast Hafnarfirði með einhverjum hætti. Hér telur t.a.m. föst búseta, að viðburður/verkefni fari fram í Hafnarfirði og/eða að verkefni feli í sér kynningu á menningarstarfsemi Hafnarfjarðar. Heildarupphæð styrkja eru 5.405.000.-
| Styrkhafi | Viðfangsefni: | Upphæð |
| Björgvin Franz Gíslason | Í hjarta Hafnarfjarðar, örþættir | 320.000 |
| Bryndís Björgvinsdóttir | Sjónarhorn álfa | 150.000 |
| Camerarctica | Mozart við kertaljós, tónleikar í Hafnarfjarðarkirkju | 120.000 |
| Christian Schultze | Maíhátíð 2018 | 75.000 |
| Eyrún Ósk Jónsdóttir | Ljóðagjörningur, friður og kærleikur | 200.000 |
| Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir | Singing Festival at Hafnarborg | 500.000 |
| Heimahátíðin | Heima, tónlistarhátíð í Hafnarfirði | 600.000 |
| Inga Björk Ingadóttir | Lýrutónleikar í Fríkirkjunni í Hafnarfirði | 150.000 |
| The Threasts Male Choir | Vortónleikar | 100.000 |
| The Threasts Male Choir | Konudagstónleikar Þrasta | 100.000 |
| Katrín Helga Ólafsdóttir | Samningurinn í Gaflaraleikhúsinu. | 150.000 |
| Konráð Ragnarsson | Ljósmyndasýning á verkum Konráðs Ragnarsson | 120.000 |
| Kvennakór Hafnarfjarðar | Vortónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar | 250.000 |
| Hafnarfjörður Brass Band | Tónleikar Lúðrasveitar Hafnarfjarðar árið 2018 | 500.000 |
| Marteinn Sindri Jónsson | Fararsnið, tónleikar | 200.000 |
| Martin Eliot Frewer | La stravaganza, tónleikar | 200.000 |
| Páll Eyjólfsson | Eyþór Ingi og allir hinir, sýning í Bæjarbíó | 300.000 |
| Rimmugýgur | Víkingahátíð í Hafnarfirði | 320.000 |
| Sigríður Margrét Jónsdóttir | Lifandi Thorsplan | 300.000 |
| Stefán Ingvar Vigfússon | Rannsókn um sviðsetningu karlmennsku | 250.000 |
| Stefán Ómar Jakobsson | Jazzkvartettinn Þula ásamt gestaleikurum, tónleikar | 150.000 |
| Tinna Bessadóttir | Álfahátíð á Jónsmessu í Hellisgerði | 350.000 |
Hafnarfjarðarbær óskar styrkþegum öllum innilega til hamingju!