Hot water supply works – Lækjargata

Projects Notices

Vegna framkvæmda við stækkun flutningsæða hitaveitu Veitna í Hafnarfirði (frá Lækjarskóla yfir Lækjargötu) má búast við truflun á umferð næst vinnusvæðinu að hverju sinni.

Vegna framkvæmda við stækkun flutningsæða hitaveitu Veitna í Hafnarfirði (á svæðinu frá Lækjarskóla yfir Lækjargötu) má búast við truflun á umferð næst vinnusvæðinu. Tilkynningar vegna þessa verða birtar á vef bæjarins og á viðeigandi hverfasíðum á Facebook að hverju sinni. Hjáleiðir verða settar upp þar sem á við og aðgengi hjólandi og gangandi vegfarenda ávallt tryggt.

Hér má lesa nánari lýsingu á framkvæmdinni:

„Veitur halda áfram stækkun stofnlagnar hitaveitu í Hafnarfirði frá Lækjargötu að Ljósatröð. Þessi framkvæmd er mikilvægur áfangi í uppbyggingu hitaveitunnar og nauðsynleg til að tryggja öllum íbúum heitt vatn. Verkið verður unnið í áföngum og mun framkvæmdasvæðið færast til eftir því sem vinnu miðar áfram.“

„Í þessum áfanga er verið að tengja lögn sem liggur sunnan við Lækjarskóla og var lögð fyrir 2 árum og mun sú lögn verða framlengd yfir Lækjagötu og inn í enda Ljósatraðar þar sem hafin er bygging stjórnlokahúss. Þessari lagnavinnu á að ljúka á árinu 2026 en húsið verðu full frágengið og tekið í rekstur með búnaði árið 2027.“

„Á meðan framkvæmdum stendur má gera ráð fyrir truflun á umferð næstu vinnusvæðinu hverju sinni, m.a. þar sem Lækjargata verður þveruð í nokkra daga á framkvæmdatímanum. Hjáleiðir verða settar upp þar sem það á við og aðgengi hjólandi og gangandi vegfarenda tryggt allan tímann.“

„Áhersla er lögð á öryggi vegfarenda og starfsfólks og viljum vita af því strax ef betur mætti fara. Gengið verður frá yfirborði í lok framkvæmda. Þegar við tengjum nýja lögn má gera ráð fyrir að við þurfum að loka fyrir heita vatnið, en við látum vita af því sérstaklega. Veitur endurnýja lagnir til að tryggja öllum íbúum nauðsynlega innviði og lífsgæði til framtíðar.“

Hægt er að kynna sér framkvæmdina á framkvæmdasjá Veitna.

Thank you in advance for your understanding!

Suggestion portal