13 verkefni hljóta menningarstyrk
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar hefur nú lokið úthlutun menningarstyrkja ársins 2018. Þrettán verkefni hljóta styrk að þessu sinni og fer formleg afhending fram 27. nóvember næstkomandi.
Menningar-
og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar hefur nú lokið úthlutun menningarstyrkja ársins
2018. Þrettán verkefni hljóta styrk að þessu sinni; einstaklingar,
menningarhópar eða samtök sem eiga öll það sammerkt að tengjast Hafnarfirði með
einum eða öðrum hætti. Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar
eru afhentir tvisvar sinnum á ári til aðila og verkefna sem líkleg eru til að
auðga og dýpka enn frekar listalíf bæjarins. Formleg afhending styrkjanna fer
fram 27. nóvember næstkomandi um leið og styrkur úr Friðrikssjóði verður
afhentur.
Úthlutun
styrkja Hafnarfjarðarbæjar byggir á mati á umsóknum. Menningarviðburðir,
listamenn, félagasamtök eða stofnanir sem sækja um styrk verða að tengjast
Hafnarfirði með einhverjum hætti. Hér telur t.a.m. föst búseta, að
viðburður/verkefni fari fram í Hafnarfirði og/eða að verkefni feli í sér
kynningu á menningarstarfsemi Hafnarfjarðar. Heildarupphæð styrkja í þessari úthlutun
er kr.- 2.595.000. Samtals hefur þá verið úthlutað 8.000.000 kr í styrki til
menningarmála á árinu.
Styrki að þessu sinni hlutu eftirfarandi:
| Spiccato | Haustlauf – tónleikar í Hafnarborg | 190.000 kr. |
| Guðbjörg Pálsdóttir | Dúkkulísur á jólum, tónleikar í Hafnarfirði á aðventu 2018 | 240.000 kr. |
| Ragnar Már Jónsson | Hátíðardjass í Hafnarfirði – tónleikar | 65.000 kr. |
| Flensborgarkórinn | Afmælistónleikar Flensborgarkórsins | 325.000 kr. |
| Duo Ultima | Duo Ultima: tónleikar með verkum eftir frönsk tónskáld | 100.000 kr. |
| Leikfélag Hafnarfjarðar | Hið vikulega 13 – hið barnalega | 70.000 kr. |
| Leikfélag Hafnarfjarðar | Ferðamaður deyr – leiksýning | 380.000 kr. |
| Jólahjón | Jólahjón – tónleikar | 300.000 kr. |
| Smithsonian Collection | Myndlistarsýning | 375.000 kr. |
| Hafnarfjörður Brass Band | Tónleikar Pollapönks, Lúðrasveitar og Kórs Öldutúnsskóla | 200.000 kr. |
| Soffía Sæmundsdóttir | Dagar myndlistar – Opin vinnustofa Soffíu 4.-28.10.2018 | 100.000 kr. |
| Leikfélag Hafnarfjarðar | Höfundanámskeið | 50.000 kr. |
| Andrés Þ. Gunnlaugsson | Concert | 200.000 kr. |
Auglýst
verður eftir umsóknum fyrir fyrri úthlutun 2019 í janúar.
Hafnarfjörður Municipality
óskar styrkþegum öllum innilega til hamingju!