Thirteen projects receive cultural grants
The Culture and Tourism Committee of Hafnarfjörður today awarded grants from the second round of cultural grants for 2018. Thirteen projects received a grant on this occasion.
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar afhenti í dag styrki úr seinni úthlutun menningarstyrkja ársins 2018. Þrettán verkefni hutu styrk að þessu sinni; einstaklingar, menningarhópar eða samtök sem eiga öll það sammerkt að tengjast Hafnarfirði með einum eða öðrum hætti. Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar eru afhentir tvisvar sinnum á ári til aðila og verkefna sem líkleg eru til að auðga og dýpka enn frekar listalíf bæjarins.
Menningarstyrki að þessu sinni hlutu eftirfarandi:
| Spiccato | Haustlauf – tónleikar í Hafnarborg | 190.000 kr. |
| Guðbjörg Pálsdóttir | Dúkkulísur á jólum, tónleikar í Hafnarfirði á aðventu 2018 | 240.000 kr. |
| Ragnar Már Jónsson | Hátíðardjass í Hafnarfirði – tónleikar | 65.000 kr. |
| Flensborgarkórinn | Afmælistónleikar Flensborgarkórsins | 325.000 kr. |
| Duo Ultima | Duo Ultima: tónleikar með verkum eftir frönsk tónskáld | 100.000 kr. |
| Leikfélag Hafnarfjarðar | Hið vikulega 13 – hið barnalega | 70.000 kr. |
| Leikfélag Hafnarfjarðar | Ferðamaður deyr – leiksýning | 380.000 kr. |
| Jólahjón | Jólahjón – tónleikar | 300.000 kr. |
| Smithsonian Collection | Myndlistarsýning | 375.000 kr. |
| Hafnarfjörður Brass Band | Tónleikar Pollapönks, Lúðrasveitar og Kórs Öldutúnsskóla | 200.000 kr. |
| Soffía Sæmundsdóttir | Dagar myndlistar – Opin vinnustofa Soffíu 4.-28.10.2018 | 100.000 kr. |
| Leikfélag Hafnarfjarðar | Höfundanámskeið | 50.000 kr. |
| Andrés Þ. Gunnlaugsson | Concert | 200.000 kr. |
Úthlutun styrkja Hafnarfjarðarbæjar byggir á mati á umsóknum. Menningarviðburðir, listamenn, félagasamtök eða stofnanir sem sækja um styrk verða að tengjast Hafnarfirði með einhverjum hætti. Hér telur t.a.m. föst búseta, að viðburður/verkefni fari fram í Hafnarfirði og/eða að verkefni feli í sér kynningu á menningarstarfsemi Hafnarfjarðar. Heildarupphæð styrkja í þessari úthlutun er kr.- 2.595.000. Samtals hefur þá verið úthlutað 8.000.000 kr í styrki til menningarmála á árinu.
Auglýst verður eftir umsóknum fyrir fyrri úthlutun menningarstyrkja 2019 í janúar.
Hafnarfjarðarbær óskar styrkþegum öllum innilega til hamingju!