Innritun á leikskóla er hafin
Í dag hófst innritun í leikskóla Hafnarfjarðar fyrir haustið 2019. Í þessari úthlutun fá börn sem eru á flutningi innan leikskóla Hafnarfjarðar og börn sem fædd eru frá júlí – des 2017 bréf um úthlutun.
Í dag hófst innritun í leikskóla Hafnarfjarðar fyrir haustið 2019. Í þessari úthlutun fá börn sem eru á flutningi innan leikskóla Hafnarfjarðar og börn sem fædd eru frá júlí – des 2017 bréf um úthlutun. Börn fædd í janúar – maí 2018 fá einnig úthlutun í leikskóla frá og með hausti. Sú úthlutun fer fram um miðjan aprílmánuð.
Þegar forráðamenn fá úthlutunarbréf í tölvupósti eru þeir vinsamlegast beðnir um að senda tölvupóst til baka eða hringja í viðkomandi leikskóla og staðfesta plássið.
Allar upplýsingar um leikskóla Hafnarfjarðar er að finna Here
Leikskólarnir opna aftur eftir sumarfrí þann 9. ágúst 2019.