West Lava – Craters
Zoning amendment
Breyting á deiliskipulagi hluta hverfis austan Reykjavíkurvegar í Hafnarfirði
Gjótur – reitir 1.1 og 1.4. sbr. rammaskipulag samþ. 15.5. 2018.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 29. 05. 2019 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi hluta hverfis austan Reykjavíkurvegar í Hafnarfirði, Gjótur – reitir 1.1 og 1.4. sbr. rammaskipulag samþ. í skipulags og byggingarráði 15.5. 2018. Landnotkun svæðisins er ÍB2 samkvæmt aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025. Í deiliskipulagsbreytingunni felst heimild til þróunar á íbúðar og þjónustuhúsnæði á reitnum.
Tillagan verður til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 6 og hjá umhverfis- og
skipulagssviði Norðurhellu 2, frá 4. júlí til 23. september 2019.
Tillögur er hægt að skoða hér:
- Deiliskipulag fyrir Gjótur – reitir 1.1 og 1.4 – greinargerð
- Minnisblað um vindafar og skjólmyndun
- Deiliskipulagsuppdráttur – tillaga
- Breyting á skipulagsmörkum – tillaga
- Skýringaruppdráttur – tillaga
Nánari upplýsingar eru veittar á umhverfis- og skipulagsþjónustu. Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til umhverfis- og skipulagsþjónustu. Athugasemdafrestur hefur verið framlengdur til 23. september 2019.