The financial situation calls for austerity and a review of priorities.

News

Fjárhagsstaða Hafnarfjarðarbæjar var til umræðu á fundi bæjarstjórnar miðvikudaginn 21. október. Í ræðu sinni á fundinum fór Þórður Þórarinsson bæjarstjóri yfir niðurstöður hálfsársuppgjörs og viðbrögð við verri afkomu en áætlað var. Minni tekjur af byggingarréttargjöldum og aukinn rekstrarkostnaður kalla á aðhald við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.

Aðhald við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027

Fjárhagsstaða Hafnarfjarðarbæjar var til umræðu á fundi bæjarstjórnar miðvikudaginn 21. október. Í ræðu sinni á fundinum fór Þórður Þórarinsson bæjarstjóri yfir niðurstöður hálfsársuppgjörs og viðbrögð við verri afkomu en áætlað var. Minni tekjur af byggingarréttargjöldum og aukinn rekstrarkostnaður kalla á aðhald við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027. Ná verði tökum á rekstrinum, sýna aðhald og koma á jafnvægi í rekstri. Um leið verði að standa vörð um grunnþjónustu bæjarins.

Horfa á ræðu bæjarstjóra – sjá á mín: 2:03:55 

Fundargerð bæjarstjórnar – mál nr. 9 á dagskrá 

Afkoma A-hluta Hafnarfjarðarbæjar var neikvæð um 2,4 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins, en áætlun gerði ráð fyrir um 435 milljóna króna afgangi. Frávikið nemur því um 2,8 milljörðum króna. Stærsta einstaka frávikið er vegna byggingarréttargjalda. Tekjur af þeim voru rúmum 1,5 milljarði króna undir áætlun og námu innan við 100 milljónum króna á tímabilinu. Hægari gangur á byggingarmarkaði hefur þannig haft veruleg áhrif á fjárhag bæjarins.

Aukinn kostnaður við þjónustu

Samhliða minni tekjum af byggingarréttargjöldum hefur kostnaður farið fram úr áætlun, einkum í fræðslumálum og félagsþjónustu. Vistgjöld voru um 480 milljónum króna yfir áætlun og aðkeypt kennslu- og sérkennsluþjónusta um 233 milljónum yfir áætlun. Launakostnaður var 2,25% umfram áætlun. Háir vextir og verðbólga auka jafnframt á fjárhagslegar áskoranir bæjarins, meðal annars vegna verðtryggðra skuldbindinga og lífeyrisskuldbindinga. Útsvarstekjur og fasteignaskattar voru hins vegar yfir áætlun. Staðan undirstrikar mikilvægi þess að reglulegar tekjur standi undir rekstri og grunnþjónustu og að reksturinn verði síður háður sveiflukenndum tekjum af uppbyggingu.

Aðhald og tímabundnar aðgerðir

,,Vinna við að greina stöðuna og undirbúa viðbrögð hófst strax á vordögum. Fjármálaúttekt og stjórnsýsluúttekt, ásamt greiningarvinnu innan bæjarins, leggja grunn að ákvörðunum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027. Í þeirri vinnu verður áhersla lögð á verulegt aðhald í rekstri, endurskoðun forgangsröðunar og betri nýtingu fjármuna. Sumar aðgerðir verða til bráðabirgða og gilda tímabundið en aðrar fela í sér varanlegar breytingar á rekstri. Jafnframt verður skoðað hvernig einfalda megi stjórnsýslu og auka skilvirkni. Gert er ráð fyrir að fresta þurfi verkefnum sem annars hefði verið vilji til að ráðast í“, segir Þórður Þórarinsson bæjarstjóri.

Raunhæfar forsendur og vernd grunnþjónustu

Hafnarfjarðarbær hefur þegar brugðist við stöðunni á byggingarmarkaði með sveigjanlegri greiðslukjörum vegna byggingarréttargjalda. Þótt áfram séu tækifæri til uppbyggingar þarf fjárhagsáætlun að byggjast á raunhæfum forsendum fremur en óvissum framtíðartekjum. Markmið vinnunnar er að skapa varanlegt jafnvægi í rekstri, draga úr viðkvæmni fyrir tekjusveiflum og tryggja grunnþjónustu við bæjarbúa til framtíðar.

 

Suggestion portal