Frestur til athugasemda hefur verið framlengdur til og með 31. maí

———————————————

Breyting á deiliskipulagi, Miðbær R4 í Hafnarfirði – Víkingastræti 2

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 15.03. 2023 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar Víkingastræti 2 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar Hafnarfjarðar á reit R4.

Samkvæmt deiliskipulagsbreytingunni er gert ráð fyrir niðurrifi byggingar á lóðinni Víkingastræti 2  er hýsir leikhús (Gaflaraleikhúsið) og að í hennar stað rísi nýbygging á lóðinni, 3 – 4 hæðir ásamt kjallara. Hámarksbyggingarmagn hótelnýbyggingar verði 3.510m². Í nýbyggingunni verði gert ráð fyrir allt að 65 hótelherbergjum, hún tengist núverandi hóteli og verði sama rekstrareining. Heimilt verði að reisa turn við anddyri nýbyggingar og svalir við öll hótelherbergi á 2., 3 og 4. hæð. Jafnframt er gerð tillaga að breytingu á lóðarmörkum lóða nr. 1, 2 og 3 við Víkingastræti og að þær verði sameinaðar í eina lóð. Gert verði ráð fyrir 21 bílastæði á sameiginlegri lóð. Kvöð verði um umferðar- og gönguleið.

Tillagan verður til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 6 og hjá umhverfis- og skipulagssviði Norðurhellu 2, frá 05.04. to 17.05. 2023.  Einnig er hægt er að kynna sér deiliskipulagstillöguna hér að neðan.

Further information is provided by the Department of Environment and Planning.

Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við breytinguna eigi síðar en 17.05. 2023 to the email address skipulag@hafnarfjordur.is or addressed to:

Hafnarfjörður Municipality
bt. Department of Environment and Planning
6 Strandgata
220 Hafnarfjörður

Suggestion portal