Frestur til athugasemda hefur verið framlengdur til og með 31. maí

———————————————

Breyting á deiliskipulagi, Miðbær R4 í Hafnarfirði – Víkingastræti 2

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 15.03. 2023 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar Víkingastræti 2 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar Hafnarfjarðar á reit R4.

Samkvæmt deiliskipulagsbreytingunni er gert ráð fyrir niðurrifi byggingar á lóðinni Víkingastræti 2  er hýsir leikhús (Gaflaraleikhúsið) og að í hennar stað rísi nýbygging á lóðinni, 3 – 4 hæðir ásamt kjallara. Hámarksbyggingarmagn hótelnýbyggingar verði 3.510m². Í nýbyggingunni verði gert ráð fyrir allt að 65 hótelherbergjum, hún tengist núverandi hóteli og verði sama rekstrareining. Heimilt verði að reisa turn við anddyri nýbyggingar og svalir við öll hótelherbergi á 2., 3 og 4. hæð. Jafnframt er gerð tillaga að breytingu á lóðarmörkum lóða nr. 1, 2 og 3 við Víkingastræti og að þær verði sameinaðar í eina lóð. Gert verði ráð fyrir 21 bílastæði á sameiginlegri lóð. Kvöð verði um umferðar- og gönguleið.

Tillagan verður til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 6 og hjá umhverfis- og skipulagssviði Norðurhellu 2, frá 05.04. til 17.05. 2023.  Einnig er hægt er að kynna sér deiliskipulagstillöguna hér að neðan.

Nánari upplýsingar eru veittar á umhverfis- og skipulagssviði.

Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við breytinguna eigi síðar en 17.05. 2023 á netfangið skipulag@hafnarfjordur.is eða stílaðar á:

Hafnarfjarðarbær
bt. umhverfis- og skipulagssvið
Strandgötu 6
220 Hafnarfjörður

Ábendingagátt