Heimgreiðslur

Hafnarfjarðarbær greiðir heimgreiðslur til foreldra/forráðamanna barna sem eru ekki í leikskóla eða hjá dagforeldri frá 12 mánaða aldri og þar til barn verður 30 mánaða. Heimgreiðslur miðast við almenna niðurgreiðslu hjá dagforeldrum fyrir 8 klst. vistun. Greiðslur falla niður ef barn hefur nám í leikskóla eða fer til dagforeldris fyrir þann tíma.

Skilyrði fyrir greiðslu eru eftirfarandi:

  • Að foreldri/forráðamaður og barn eigi lögheimili í Hafnarfirði
  • Að barn sé orðið 12 mánaða og ekki eldra en 30 mánaða. Hægt er að óska eftir heimgreiðslu vegna barns eldri en 30 mánaða á meðan beðið er eftir plássi í leikskóla í Hafnarfirði og ekki er verið að greiða fyrir pláss annarsstaðar
  • Að barn sé á biðlista eftir leikskólaplássi í Hafnarfirði

Að foreldrar/forráðamenn séu ekki að þiggja aðrar niðurgreiðslur vegna barnsins frá Hafnarfjarðarbæ

Sækja skal um heimgreiðslur á Mínum síðum og greitt er fyrsta virka dag hvers mánaðar eftir á fyrir nýliðinn mánuð. Heimgreiðslur eru ekki afturvirkar.

Athugið að umsóknartímabilið er frá 20. til 19. hvers mánaðar.

Því þurfa umsóknir fyrir t.d. mars mánuð að berast á tímabilinu 20. febrúar til 19. mars og greitt er í byrjun apríl.