Hreinsun og umhirða

Fallegt og öruggt nærumhverfi lætur öllum líða betur.

Gras og gróður

Senda ábendingu

Viðhald og umhirða á beðum, gróðri og grasi í bænum er útfært á umhverfisvænan og hagkvæman hátt.

Grassláttur

Gras í bænum er slegið 3–6 sinnum yfir sumarið af verktökum og Þjónustumiðstöð. Þau svæði sem eru mest notuð eru oftast slegin.

Það er ekki slegið inni á lóðum hjá fólki en hægt er að sjá lóðamörk á kortavefnum undir Fasteignum. Spurningar og ábendingar um slátt er best að senda gegnum Ábendingagáttina.

Græn svæði

Hellulagnir og hreinsanir á trjá- og blómabeðum eru framkvæmdar á sumrin af Þjónustumiðstöð og Vinnuskólanum.

Umhverfisvæn og hagkvæm sjónarmið eru höfð að leiðarljósi í útfærslu gróðurs og grænna svæða í bænum. Til dæmis:

  • Útrýming á perlumöl á leikvöllum, í staðinn er settur umhverfisvænni og þægilegri kostur, eins og gúmmíhellur.
  • Blómaengi á umferðareyjum, þau þurfa ekki slátt og eru betri fyrir umhverfið.
  • Batterístæki eru notuð í stað rafmagnstækja.