Matjurtagarðar

Í matjurtagörðum er frábært tækifæri til að rækta sitt eigið grænmeti á sumrin.

Matjurtagarðar Hafnarfjarðar eru fyrir alla bæjarbúa, bæði fjölskyldur og einstaklinga, gegn vægu gjaldi. Þú þarft að koma með grænmeti og annað efni til ræktunar en færð aðgengi að vatni og minni verkfærum.

Matjurtagarðarnir eru staðsettir í Öldutúni og á Víðistöðum. Garðarnir afhendast tættir og hefst úthlutun í lok maí. Skráning hefst 30. apríl, velja þarf sveitarfélag og staðsetningu á matjurtagarði sem óskað er eftir (matjurtagarður Öldutún/matjurtagarður Víðistaðir).

Gjaldskrá

Matjurtagarðar

Matjurtagarðar kr.
Matjurtagarðar - tættur garður 10 fm 1.850 kr.
Matjurtagarðar - upphækkaður matjurtarkassi 10 fm 6.000 kr.