Frístundaakstur

Öllum börnum í 1.–4. bekk er boðið upp á frístundaakstur á æfingar sem hefjast kl. 15 og 16.

Skráning

Æfingatöflur og upplýsingar um skráningu í íþrótta- og tómstundastarf er hægt að nálgast hjá íþrótta- og tómstundafélögunum. Best er að skrá börn fyrst á æfingar og síðan í frístundaakstur.

Aksturinn er ókeypis og komast öll skráð börn að.

Börn sem ekki eru skráð í frístundaheimili í 1.–4. bekk geta líka nýtt sér aksturinn. Þá er það á ábyrgð foreldra að tryggja að þau séu mætt á réttum tíma á upphafsstað frístundaakstursins.

Skipulag

Ekið er frá frístundaheimilum í grunnskólum Hafnarfjarðar alla virka daga, nema í jóla-, páska- og vetrarfríum grunnskólanna. Ekið er á æfingar hjá fjölmörgum félögum, eins og Listdansskólanum, Tónlistarskólanum, fimleikafélaginu Björk, FH (Kaplakrika), Haukum (Ásvöllum), SH, Badmintonfélags Hafnarfjarðar og Golfklúbbsins Keilis.

Starfsmaður frá frístundaheimili er með í hverri ferð og tryggir öryggi krakkanna í rútunni og réttan áfangastað. Foreldrar eða forsjáraðilar sækja síðan börnin á æfingastað þegar æfingu er lokið.