Í námi er lögð áhersla á gæði, vellíðan, félagslegt öryggi, sjálfstæði og árangur. Borin er virðing fyrir ólíkum lífsháttum og fjölbreytni. Hvetjandi aðstæður til náms styðja við frumkvæði, samvinnu og sköpun. Nemendur þróa hæfileika sína á eigin forsendum og njóta stuðnings til að þroskast og dafna.
Áherslur 2022 – 2025
- Bjóða upp á menntun sem kemur til móts við fjölbreyttar þarfir barna.
- Virkja sköpunarkraft nemenda og starfsfólks.
- Virða ólíka lífshætti og skoðanir með því að efla þekkingu og styðja við inngildingu.
- Leggja áherslu á gott viðmót í öllu skólastarfi og jákvæðan skólabrag.
- Efla forvarnir og geðrækt hjá börnum og ungmennum.
- Valdefla nemendur og styrkja í félagsfærni.
- Auka þátttöku, ábyrgð og sjálfstæði nemenda á eigin námi og námsmati.
- Aukin teymisvinna og samstarf í öllu skólasamfélaginu.