Apollo – an arts festival for young people in Hafnarfjörður 2023
Listahátíðin Appoló hefst þann 20. október í Ungmennahúsinu Hamrinum og í ár eru í boði átta glæsilegar smiðjur. Aldurstakmark í smiðjurnar er 16-25 ára og frítt fyrir alla þátttakendur. Skráning er hafin.
Skráning er hafin á átta glæsilegar smiðjur
Listahátíðin Appoló hefst þann 20. október í Ungmennahúsinu Hamrinum og í ár eru í boði átta glæsilegar smiðjur. Aldurstakmark í smiðjurnar er 16-25 ára og frítt fyrir alla þátttakendur. Hámarksfjöldi á hvert námskeið eru 15 ungmenni þannig að áhugasöm eru hvött til að skrá sig sem fyrst. Appolo listahátíðin, sem haldin er í annað sinn í Hafnarfirði í ár, er skipulögð fyrir ungt fólk og af ungu fólki í Hafnarfirði.
Smiðjurnar átta eru eftirfarandi:
- SÖNGSMIÐJA með Rakel Björk (22. og 29. október frá kl. 12-16)
- SKAPANDI SKRIF með Bergrúnu Írisi (22. október og 4. nóvember frá kl. 17-19)
- DJ NÁMSKEIÐ með DJ Dóru Júlíu (23. október frá kl. 17:30-21)
- RAPPNÁMSKEIÐ með Króla (1., 3. og 6. nóvember frá kl. 17:30-20:30)
- TÖLVUTÓNLIST & PRODUCTION með Ingimari Tryggvasyni (4. og 5. Nóvember frá kl. 12-16)
- HEKLNÁMSKEIÐ með Kristjönu frá Hringlandi (mán 30. október KL 17:30-20:30)
- SJÁLFSTYRKINGARNÁMSKEIÐ með Junior Sanchez / kennt á ensku (lau 18. nóv & sun 19. nóv kl. 11:00-16:00)
- MATREIÐSLUNÁMSKEIÐ (sun 19. nóv KL 17:00-20:00)