Lokun sundstaða vegna heitavatnsleysis
Lokanir sundstaða vegna heitavatnsleysis
Skrúfað fyrir heita vatnið vegna framkvæmda með tilheyrandi áhrifum á heimili, fyrirtæki, stofananir og sundstaði. Minnum á að heitavatnslaust verður í Hafnarfirði sem og í Kópavogi, Garðabæ, Norðlingaholti, Breiðholti og á Álftanesi frá kl. 22 í kvöld 19. ágúst til hádegis 21. ágúst. Heitavatnsleysið hefur áhrif á opnunartíma sundlauga á þessu svæði en lokað verður í sundlaugarnar m.a. í Hafnarfirði allan daginn á morgun, þriðjudag.
Mánudagur 19. ágúst
Suðurbæjarlaug og Ásvallalaug loka kl. 21.30
Þriðjudagur 20. ágúst
Lokað í Suðurbæjarlaug, Ásvallalaug og Sundhöll Hafnarfjarðar
Gym Heilsa í Ásvallalaug opin án búningsklefa
Miðvikudagur 21. ágúst
Lokað í Suðurbæjarlaug, Ásvallalaug og Sundhöll Hafnarfjarðar til kl. 12. Mögulega opna einhver laugarker síðar þann sama dag allt eftir því hver staðan er á heitu vatni í kerjunum.
Gym Heilsa í Ásvallalaug opin án búningsklefa meðan lokað er eða til kl. 12