Hafnarfjörður Rescue Squad 25 years

News

Liðin eru 25 ár síðan Björgunarsveit Hafnarfjarðar var stofnuð en sveitin varð til við sameiningu Björgunarsveitarinnar Fiskakletts og Hjálparsveitar skáta þann 26. febrúar árið 2000.

Hátt í 100 ára saga hjálparstarfs í Hafnarfirði

Liðin eru 25 ár síðan Björgunarsveit Hafnarfjarðar var stofnuð en sveitin varð til við sameiningu Björgunarsveitarinnar Fiskakletts og Hjálparsveitar skáta þann 26. febrúar árið 2000. Við sameininguna varð til ein stærsta og öflugasta björgunarsveit landsins.

Blásið var til veislu í tilefni tímamótanna á sjálfan afmælisdaginn í Björgunarmiðstöðinni Kletti að Hvaleyrarbraut 32 þar sem gestum gafst kostur á að skoða húsnæðið og tækin. Bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Valdimar Víðisson, var þar fremstur í flokki, áhugasamur um að fræðast um starfsemi sveitarinnar.

„Sveitarfélagið er stolt af því að eiga innan sinna raða hvorutveggja íbúa og starfsfólk sem vinnur ötult og óeigingjarnt björgunar- og hjálparstarf og er til taks allan sólarhringinn allt árið um kring. Við erum ákaflega stolt af okkar sveit og þakklát að vita af þeim á vaktinni alla daga,“ segir Valdimar. „Þjálfuð og vel rekin björgunarsveit er mikilvæg undirstaða í viðbragðsáætlunum allra sveitarfélaga“.

Kallmerki sveitarinnar er SPORI

Þrátt fyrir ungan aldur Björgunarsveitar Hafnarfjarðar þá er saga björgunar- og hjálparstarfs í Hafnarfirði að nálgast 100 árin óðfluga. Sveitin er búin fjölda tækja og samhentum mannskap sem býr yfir þeirri þekkingu og reynslu sem þarf til að vera ávallt til staðar. Á útkallslista eru hátt í 200 manns. Félagar sem leggja mikið á sig til þess að halda sér, jafnt sem tækjum og búnaði, í sem allra besta formi svo hægt sé að bregðast fljótt  og örugglega við þegar þörf skapast. Sveitin, sem starfar innan Slysavarnafélagsins Landsbjargar, starfar á flestum vettvöngum björgunarstarfs og getur brugðist við hvers konar vá, hvort sem er á landi eða sjó. Sveitin heldur auk þess hlífskyldi um unglingadeildina Björgúlf sem er ein elsta unglingadeild landsins. Þannig viðheldur sveitin 20 ára gamalli hefð sem er jafnframt mikilvægur hlekkur í sögu Hafnarfjarðar sem og sögu alls björgunarstarfs á Íslandi.

 

Innihaldsríkur rekstrarsamningur til fjölda ára

Hafnarfjarðarbær og Björgunarsveit Hafnarfjarðar hafa um árabil gert með sér rekstrarsamning sem tekur að mestu á rekstri björgunar- og slysavarnarmiðstöðvar félagsins. Forsendur fyrir framlagi Hafnarfjarðarbæjar til rekstrar eru byggðar á rauntölum úr rekstri liðinna ára sem er samskonar módel og haft er til hliðsjónar við stuðning bæjarins við íþróttafélögin. Fyrirfram ákveðnum hluta framlagsins er varið til unglinga- og æskulýðsmála og þar með talið til forvarnarmála sem tilgreind eru í ársskýrslu félagsins ár hvert. Að öðru leyti ver björgunarsveitin fjárframlagi Hafnarfjarðarbæjar til nýliðaþjálfunar, þjálfunar björgunarmanna, viðhaldi og rekstri tækjabúnaðar, viðhaldi og þjálfun vegna almannavarnabúnaðar. Hluti af rekstrarsamningi hefur einnig náð til þátttöku sveitarinnar í skipulagningu og framkvæmd Sjómannadagsins í Hafnarfirði og vekur aðkoman alltaf jafn mikla ánægju og athygli.

Já, þakklæti til björgunarsveitanna er mikið

Innilega til hamingju Björgunarsveit Hafnarfjarðar með afmælið ykkar og bestu þakkir fyrir ykkar framlag í þágu samfélagsins í Hafnarfirði og á landinu öllu.

 

Suggestion portal