Spring clean-up – garden waste bins at all primary schools
Dagana 8. – 11. maí 2025 standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinni HREINSUM HAFNARFJÖRÐ. Þá geta íbúar í Hafnarfirði losað sig við garðúrgang í gám innan allra hverfa við hvern og einn grunnskóla. Gámarnir verða við skólana frá morgni fimmtudaginn 8. maí til kl. 17 sunnudaginn 11. maí. Íbúar í Hafnarfirði eru hvattir til að nýta sér þjónustuna eða koma pokunum beint á Sorpu. Vakin er sérstök athygli á því að Sorpa tekur á móti garðúrgangi endurgjaldslaust.
See opening hours for the Breiðhelli tip here.
Tökum virkan þátt og nýtum þessa þjónustu
Íbúar eru hvattir til að nota endurunnar umbúðir eða margnota poka við hreinsunina. Bent er á að ekki má setja garðaúrganginn í pokum í gáminn heldur skal losa úr pokunum beint í gáminn. Tilvalið er einnig, þar sem möguleikinn er fyrir hendi, að safna garðaúrgangi í safnhaug á góðum stað í garðinum og nýta til moltugerðar. Íbúar í öllum hverfum Hafnarfjarðar eru hvattir til að taka virkan þátt í hreinsuninni og er tilvalið í aðdraganda hreinsunardaga og á meðan á hreinsunardagar standa yfir að taka til hendinni í garðinum, snyrta runna og beð.

Let's clean, reuse, sort and pick!