Vorhreinsun – gámar fyrir garðúrgang við alla grunnskóla

Dagana 8. – 11. maí 2025 standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinni HREINSUM HAFNARFJÖRÐ. Þá geta íbúar í Hafnarfirði losað sig við garðúrgang í gám innan allra hverfa við hvern og einn grunnskóla. Gámarnir verða við skólana frá morgni  fimmtudaginn 8. maí til kl. 17 sunnudaginn 11. maí. Íbúar í Hafnarfirði eru hvattir til að nýta sér þjónustuna eða koma pokunum beint á Sorpu. Vakin er sérstök athygli á því að Sorpa tekur á móti garðúrgangi endurgjaldslaust.

Sjá opnunartíma á Sorpu Breiðhellu hér

Tökum virkan þátt og nýtum þessa þjónustu

Íbúar eru hvattir til að nota endurunnar umbúðir eða margnota poka við hreinsunina. Bent er á að ekki má setja garðaúrganginn í pokum í gáminn heldur skal losa úr pokunum beint í gáminn. Tilvalið er einnig, þar sem möguleikinn er fyrir hendi, að safna garðaúrgangi í safnhaug á góðum stað í garðinum og nýta til moltugerðar. Íbúar í öllum hverfum Hafnarfjarðar eru hvattir til að taka virkan þátt í hreinsuninni og er tilvalið í aðdraganda hreinsunardaga og á meðan á hreinsunardagar standa yfir að taka til hendinni í garðinum, snyrta runna og beð.

Hreinsum, endurnýtum, flokkum og plokkum!

Ábendingagátt