Íþróttabandalag Hafnarfjarðar 80 ára

News

Hópur fólks sem stendur að sterku íþróttalífi okkar Hafnfirðinga hélt í gær upp á 80 ára afmæli ÍBH, Íþróttabandalags Hafnarfjarðar. Bandalagið var stofnað 28. apríl 1945.

Íþróttabandalag Hafnarfjarðar í áttatíu ár

Hópur fólks sem stendur að sterku íþróttalífi okkar Hafnfirðinga hélt í gær upp á 80 ára afmæli ÍBH, Íþróttabandalags Hafnarfjarðar. Bandalagið var stofnað 28. apríl 1945.

Valdimar Víðisson bæjarstjóri óskaði félaginu til hamingju. Hann hitti fyrir íþróttafulltrúa, íþrótta- og tómstundanefnd, stjórn ÍBH og fulltrúi ÍSÍ og UMFÍ. Einnig fyrrverandi íþróttafulltrúinn Ingvar Jónsson og Elísabetu Ólafsdóttur, framkvæmdastjóri ÍBH.

Íþróttalífið breyst mikið

Elísabet segir að Ingvar hafi átt stóran þátt í að íþróttamannvirki risu eitt af öðru hér í Hafnarfirði. „Það var virkilega gaman að hann gat verið með okkur,“ lýsir Elísabet sem hefur verið framkvæmdastjóri félagsins 2008. „Já, ég hef að vera í þessum geira í 39 ár: Unnið við íþróttakennslu og verið að þjálfa,“ svarar hún spurð.

En hefur margt breyst á þessum tíma? „Rosalega mikið,“ segir hún. Íþróttastarf hafi gjörbreyst með áherslu á að hafa menntaða þjálfara í starfi með börnunum; ein helsta áherslan síðustu þrjá áratugi. „Þegar ég var ung var þetta einhver og einhver. Við höfum fylgt þessu markvisst eftir og höfum haft hvata í sambandi við þjálfaramenntun og að félögin fái börnin til að þjálfa reglulega.“

Glæsileg íþróttamannvirki

Elísabet segir að helsta baráttumálið frá upphafi hafi þó verið að fá íþróttaaðstöðu. „Við erum enn á þeim stað. Nú eigum við glæsileg íþróttamannvirki, enda ekki aðeins með börn sem eru þátttendur í íþróttastarfi heldur glæsileg ungmenni og ungt fullorðið sem stendur sig frábærlega,“ segir hún.

Innilega til hamingju með 80 árin.

Suggestion portal