Public meeting on 11 November regarding the 2025-2040 general plan for Hafnarfjörður
Íbúafundur verður haldinn í íþróttamiðstöð Hauka þriðjudaginn næsta 11. nóvember kl. 17. Þar verður farið yfir endurskoðun aðalskipulags Hafnarfjarðar 2025 – 2040.
Endurskoðun aðalskipulags 2025 – 2040
Íbúafundur verður haldinn í íþróttamiðstöð Hauka þriðjudaginn næsta 11. nóvember kl. 17. Þar verður farið yfir endurskoðun aðalskipulags Hafnarfjarðar 2025 – 2040. Á þessu stigi kynningarferlisins er lögð fram tillaga að skipulagsáformum til framtíðar sem gefur nokkuð skýra mynd af því hvernig uppbyggingu í Hafnarfirði verður háttað næstu ár. Í kjölfarið verða haldnar vinnustofur þar sem hægt verður að kynna sér nánar mismunandi viðfangsefni.
Vinnustofurnar verða haldnar í Hafnarborg þar sem ráðgjafateymi mun kynna eftirfarandi skipulagsverkefni og leiða fundina:
- 13. nóvember – miðbær og íbúðabyggð
- 17. nóvember – upplandið og Krýsuvík
Vinnustofurnar byrja kl. 17 og má gera ráð fyrir að þær verði 1,5 klst. Gengið er inn frá Strandgötu. Vakin er athygli á því að tillaga á vinnslustigi er í kynningu til 24.11.2025 og má nálgast hana á skipulagsgatt.is.