Emergency management response plan signed
Fyrsta formlega útgáfa viðbragðsáætlunar fyrir Hafnarfjörð hefur verið undirrituð og er komin í gagnið. Með áætluninni er settur skýr rammi um skipulag, ábyrgð og stjórnun aðgerða þegar áföll eða neyðarástand skapast.
Viðbragðsáætlun neyðarstjórnar tiltæk
Valdimar Víðisson bæjarstjóri og Jón Viðar Matthíasson hafa undirritað viðbragðsáætlun neyðarstjórnar Hafnarfjarðarbæjar.
Um er að ræða fyrstu formlegu útgáfu áætlunarinnar, en unnið hefur verið í samræmi við efni hennar í viðbrögðum sveitarfélagsins undanfarin ár. Með áætluninni er settur skýr rammi um skipulag, ábyrgð og stjórnun aðgerða þegar áföll eða neyðarástand skapast. „Öryggi íbúa er okkar mikilvægasta verkefni. Með þessari viðbragðsáætlun erum við að styrkja stjórnun og samhæfingu þegar mest á reynir og tryggja að við séum sem best undirbúin til að bregðast við ólíkum aðstæðum,“ segir Valdimar Víðisson bæjarstjóri.
Forgangsröðun, samhæfing og samræmd stjórnun
Áætlunin er unnin í samstarfi við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, almannavarnir og önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. Hún byggir á reynslu fyrri ára og tekur mið af auknum kröfum um skjót, samhæfð og fagleg viðbrögð í sífellt flóknara samfélagi. Markmið áætlunarinnar er að tryggja skýra forgangsröðun, samhæfingu og samræmda stjórnun, með öryggi og hagsmuni íbúa að leiðarljósi. Sérstök áhersla er lögð á að tryggja samfellu í samfélagslega mikilvægri þjónustu, svo sem velferðarþjónustu, skólastarfi, innviðum og upplýsingagjöf.

Valdimar Víðisson bæjarstjóri og Jón Viðar Matthíasson, framkvæmdastjóri almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins.Neyðarstjórn sveitarfélagsins er virkjuð við yfirvofandi vá eða neyðarástand og hefur það hlutverk að taka hraðar og upplýstar ákvarðanir, samhæfa aðgerðir og forgangsraða úrræðum. Viðbragðsáætlunin er opinber, en fylgiskjöl hennar eru vinnugögn fyrir stjórnendur og starfsfólk. Gert er ráð fyrir að áætlunin verði endurskoðuð og uppfærð að minnsta kosti árlega. Áætlunin hefur verið lögð fyrir bæjarráð til kynningar.