Á þessari sýningu er gestum boðið í tívolí þar sem umhverfið er baðað rósrauðum bjarma. Hlutir, manneskjur og dýr birtast á brenglaðan hátt til skemmtunar og skærleiki litanna er skrúfaður í botn. Bleiki liturinn er sérstaklega notaður til að undirstrika fegurð og þrá.

Á meðan við skemmtum okkur fer þó margt framhjá okkur. Í stjórnleysi myndanna og skúlptúranna leynast einnig ófyrirsjáanlegar afleiðingar þess að láta freistast. Með því að spegla það sem er skapað til að vera skemmtilegt og eftirsóknarvert vil ég spyrja: Hvað þráum við raunverulega, og hvað skilur þráin eftir sig?

—————————–

Nína Þorbjörg Árnadóttir er BA nemi í myndlist við Listaháskóla Íslands, eftir að hafa lokið ári á listmálarabraut Myndlistaskóla Reykjavíkur. Bleikt Tívolí er hennar fyrsta einkasýning, en áður hefur hún tekið þátt í samsýningum með listmálaradeildinni.

Hún vinnur gjarnan með blandaða tækni í verkum sínum og er um þessar mundir að víkka sjóndeildarhringinn með nýjum miðlum. Helstu viðfangsefni hennar eru sálarlíf og sambönd fólks, túlkuð með fígúrum, texta og þeim aðferðum sem henni þykja eiga við hverju sinni.

Sérstök sýningaropnun verður fimmtudaginn 16. apr frá 18:00-21:00 og þér er boðið !

Other opening times:

Fös.           17. apr           14:00 – 18:00
Lau.           18. apr           13:00 – 17:00
Sun.           19. apr           14:00 – 17:00
Mið.           22. apr           14:00 – 16:00
Fim.           23. apr           14:00 – 16:00
Fös.           24. apr           14:00 – 18:00
Lau.           25. apr           13:00 – 17:00
Sun.           26. apr           14:00 – 17:00

LG // Litla Gallerý er styrkt af Hafnarfjarðarbæ vegna viðburðarins

—————————–

In this exhibition, visitors are invited into a carnival where the surroundings are bathed in a pink glow. Objects, people and animals appear in distorted forms for entertainment, and the brightness of the colors is turned up to the extreme. The color pink in particular is used to highlight beauty and desire.

Yet while we have fun, much escapes our attention. Within the chaos of the images and sculptures lie the unpredictable consequences that follow when we allow ourselves to be tempted. By reflecting back what is created to be entertaining and desirable, I ask: what do we truly long for, and what does that longing leave behind?

—————-

Nína Þorbjörg Árnadóttir is a BA student in Fine Art at the Iceland University of the Arts, after completing a year at the painting department at The Reykjavík School of Visual Arts. Pink Carnival is her first solo exhibition, though she has previously participated in group exhibitions with the painting department.

She often works with mixed media and is currently expanding her practice through new mediums. Her work explores themes of people’s inner life and relationships, interpreted with figures, text, and the methods she finds most appropriate in each instance.

There will be a special exhibition opening on Thursday, April 16th  from 18:00-21:00 and you are welcome!

Other opening hours:

Fri.             17. apr           14:00 – 18:00
Sat.            18. apr          13:00 – 17:00
Sun.           19. apr           14:00 – 17:00
Wed.          22. apr          14:00 – 16:00
Thur.         23. apr           14:00 – 16:00
Fri.            24. apr            14:00 – 18:00
Sat.           25. apr           13:00 – 17:00
Sun.           26. apr          14:00 – 17:00

LG // Litla Gallerý is sponsored by town Hafnarfjordur for this event.

Suggestion portal