Auglýsing um skipulag – Hafnarfjarðarbær

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 22. apríl 2026 að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Iðnaðarhverfis austan Reykjavíkurvegar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010.

Breytingin felst í uppbyggingu fjölbýlishúsa á 4–5 hæðum auk kjallara, samtals um 240 íbúðir og 600 m² atvinnuhúsnæðis. Byggingarnar munu umlykja inngarða sem opnast til austurs og tengjast þannig grænum útivistarási. Lögð er áhersla á fjölbreytt framboð íbúða hvað varðar stærð og gerð.

Tillaga að breyttu deiliskipulagi verður kynnt á kynningarfundi þriðjudaginn 19. maí milli klukkan 15:30–16:30 á Norðurhellu 2 í Hafnarfirði.

Á kynningartíma frá 7. maí til 24. júní 2026 má nálgast tillöguna á vef skipulagsgáttar https://skipulagsgatt.is/, mál nr. 504/2026.

Athugasemdum og/eða ábendingum skal skila rafrænt í gegnum skipulagsgátt HMS. Ef óskað er frekari upplýsinga um tillögur í kynningu er hægt að senda fyrirspurn á netfangið: skipulag@hafnarfjordur.is

Department of Environment and Planning, Hafnarfjörður

Suggestion portal