Sing-along party in Hellisgerði

Föstudaginn 19. júní kl. 19:00

Guðrún Árný býður til sívinsæls söngpartýs í fallegu umhverfi Hellisgerðis. Söngpartýin hennar hafa notið mikilla vinsælda enda skapa þau einstaka stemningu þar sem tónlist, gleði og samvera fara saman.

Gestirnir ráða lagavalinu og eru því stór hluti af upplifuninni. Hér gefst öllum tækifæri til að syngja með, tralla og njóta skemmtilegrar kvöldstundar undir berum himni.

Frábær skemmtun fyrir fjölskyldur, vinahópa, saumaklúbba, vinnufélaga og alla sem hafa gaman af söng og góðri stemningu.

Sjáumst á skemmtilegasta útisöngpartýi sumarsins!

Suggestion portal