Nostalgía á menningardögum í Áslandsskóla

News

Lognið á eftir storminum kom í Áslandinu í gær þegar árlegir menningardagar í Áslandsskóla fóru fram. Það sem hófst sem skólahefð hefur með árunum þróast í eina stærstu hverfishátíðina í nærumhverfinu og gegnir nú mikilvægu hlutverki í öflugu skólasamfélaginu í Áslandinu.

Styrkja skólasamfélagið í gleði og sköpun

Lognið á eftir storminum kom í Áslandinu í gær þegar árlegir menningardagar í Áslandsskóla fóru fram. Það sem hófst sem skólahefð hefur með árunum þróast í eina stærstu hverfishátíðina í nærumhverfinu og gegnir nú mikilvægu hlutverki í öflugu skólasamfélaginu í Áslandinu.

Áratugir – innblástur í ólíka tíma fortíðar

Mikil tilhlökkun ríkti meðal nemenda, starfsfólks og gesta, og var skólinn fullur af lífi, litum og sköpunargleði. Nemendur höfðu unnið markvisst að fjölbreyttum verkefnum dagana á undan þar sem þema ársins var „áratugir“. Útkoman var einstaklega fjölbreytt og skapandi – allt frá myndlist og uppsetningum til tónlistar og sviðsflutnings.

Foreldrar og forsjáraðilar fjölmenntu og upplifðu margir hverjir skemmtilega nostalgíu þegar þeir gengu um ganga skólans og kynntu sér verk nemenda sem sóttu innblástur í ólíka tíma fortíðar. Bæjarstjóri heiðraði skólann með nærveru sinni, líkt og hefð er fyrir, og naut þess að hlýða á lifandi og skapandi flutning nemenda á sviði.

„Þessir menningardagar sýna með skýrum hætti þann kraft sem býr í skólasamfélaginu okkar. Hér fá börnin tækifæri til að blómstra, tjá sig og vinna saman á skapandi hátt – og um leið styrkist tengslanet fjölskyldna og hverfisins alls,“ segir bæjarstjóri.

Menningardagar Áslandsskóla eru skýrt dæmi um kraftmikla samvinnu skóla og samfélags þar sem sköpun, samvera og gleði fá að njóta sín – og sýna hversu mikilvægt er að rækta menningu og listir í skólastarfi.

Suggestion portal