Starfsánægja eykst hjá Hafnarfjarðarbæ

News

Heildarstarfsánægja starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar hækkar milli ára. Ánægjan mælist yfir landsmeðaltali íslensku starfsánægjuvísitölunnar. Rannsóknarfyrirtækið Prósent sá um framkvæmdina.

Ánægja yfir landsmeðaltali

Heildarstarfsánægja starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar hækkar milli ára. Ánægjan mælist yfir landsmeðaltali íslensku starfsánægjuvísitölunnar. Hafnarfjarðarbær mælist yfir íslensku starfsánægjuvísitölunni í meirihluta mældra þátta í vinnustaðagreiningunni, eða í 7 af 10 flokkum. Í tveimur flokkum er staðan jöfn meðaltalinu og aðeins einn flokkur mælist lítillega undir.

„Það er afar ánægjulegt að sjá þessa stöðugu jákvæðu þróun yfir nokkur ár. Hún sýnir að þegar hlustað er á raddir starfsfólks og unnið er markvisst að umbótum í starfsumhverfi og stjórnun, þá skilar það sér í aukinni starfsánægju og bættri líðan,“ segir Lind Einarsdóttir, mannauðsstjóri Hafnarfjarðarbæjar.

Af tíu mældum þáttum hækkar einkunn í fimm flokkum milli ára og helst óbreytt í fjórum. „Sérstaklega er ánægjulegt að sjá marktæka hækkun í mati á stjórnun, þar sem mat á æðstu stjórnendum hækkar, auk þess sem mat á launum og kjörum hækkar marktækt á milli ára,“ segir Lind.

Stöðug jákvæð þróun sést þegar horft er til síðustu þriggja ára. Flestir lykilþættir vinnustaðanna, svo sem starfsánægja, traust, stjórnun og upplifun starfsfólks af starfsskilyrðum, hafa verið á uppleið frá árinu 2023. „Niðurstöðurnar sýna að umbótavinna bæjarins er ekki tilviljunarkennd heldur hluti af samfelldri vegferð þar sem markvisst er unnið með niðurstöður og fylgt eftir með aðgerðum,“ segir hún.

Niðurstöðurnar verða nýttar áfram sem leiðarljós í verkefninu Vellíðan í starfi, 18 mánaða vegferð að bættri heilsu og betri líðan. Þær verða kynntar stjórnendum og starfsfólki, unnið verður nánar með niðurstöðurnar á einstökum vinnustöðum og mótaðar aðgerðaráætlanir í samráði við starfsfólk. Markmiðið er að halda áfram á þessari góðu vegferð og skapa vinnustaði þar sem fagmennska, traust og vellíðan eru í forgrunni.

Könnunin var lögð fyrir í febrúar 2026 og var svarhlutfall 69%, sem gefur áreiðanlega mynd af upplifun starfsfólks af vinnustöðum bæjarins. Rannsóknarfyrirtækið Prósent sá um framkvæmd könnunarinnar og tryggði 100% trúnað við þátttakendur.

Já, það er gott að vinna hjá ykkur Hafnfirðingum.

 

Myndatexti: Á myndinni má sjá fjölda stjórnenda hjá Hafnarfjarðarbæ.

Suggestion portal