Drawings, performance and water flow at Hafnarborg
Tvennar sýningar opna í Hafnarborg fimmtudaginn 12. nóvember kl. 18. The flow of water eftir Beili Liu og Thoughts eftir Styrmi Örn. Öll velkomin
New exhibitions at Hafnarborg
Teikningar sem hanga úr lofti og plastbrot sem hafstraumar hafa borið milli stranda eru meðal þess sem mætir gestum á tveimur nýjum sýningum í Hafnarborg. Thoughts eftir Styrmi Örn Guðmundsson og The flow of water eftir Beili Liu verða opnaðar fimmtudaginn 12. nóvember kl. 18. Við opnunina flytur Styrmir Örn jafnframt nýjan gjörning.
Koma Beili Liu til safnsins tengist merkum tímamótum en í ár eru 40 ár frá því að gestavinnustofa Hafnarborgar hóf starfsemi. Hún er sú elsta sinnar tegundar á Íslandi og þar hafa listamenn víðs vegar að úr heiminum dvalið við listsköpun. Liu var gestalistamaður þar veturinn 2023–2024 og snýr nú aftur með sýningu.
Gestir ganga á milli teikninga
Styrmir Örn féttar saman teikningum og gjörningi á sýningunni Hugrenningum. Stórar teikningar, unnar á síðustu tíu árum, hanga úr lofti og mynda innsetningu sem gestir geta gengið um.
Innsetningin verður jafnframt sviðsmynd fyrir gjörninginn sem Styrmir Örn flytur við opnunina. Gjörningurinn verður í framhaldinu sýndur sem myndbandsverk á sýningunni. Þannig leitar listamaðurinn að snertifleti milli hins kyrra og kvika.
Styrmir Örn vinnur með gjörninga, teikningar, skúlptúr og tónlist og hefur sýnt verk sín víða hérlendis og erlendis. Sýningarstjóri Hugrenninga er Heiðar Kári Rannversson.
Áhrif mannsins á hafstrauma
Vatnið er leiðarstef í verkum Beili Liu. Á sýningunni The flow of water beinir hún sjónum að tengslum manns og náttúru og því hversu viðkvæmt samband þeirra er. Verkin byggjast á yfirstandandi listrannsóknum hennar á norðurslóðum og nærliggjandi svæðum.
Í samnefndri innsetningu sýningarinnar koma saman plastbrot sem hafa veðrast og máðst í náttúrunni. Hafstraumar hafa borið þau langar leiðir og brotin bera vitni um áhrif athafna mannsins á jörðina og vistkerfi hennar.
Liu er bandarísk myndlistarkona, fædd í Kína og búsett í Austin í Texas, þar sem hún er prófessor við University of Texas at Austin. Verk hennar hafa verið sýnd víða um heim. Sýningarstjóri Vatnsins streymis er Hólmar Hólm.
Báðar sýningarnar standa til 21. febrúar 2027. Öll eru velkomin á opnunina.
- Og munum, aðgangur að Hafnarborg er ókeypis.
- Safnið er opið kl. 12–17 alla daga nema þriðjudaga.