The first day of summer in Hafnarfjörður
Gleðilegt sumar kæru Hafnfirðinga og vinir Hafnarfjarðar. Heilsubærinn Hafnarfjörður fagnar sumarkomunni með sumarhátíð í Hafnarfirði. Hátíðarhöldin hefjast kl. 12 með víðavangshlaupi í hjarta Hafnarfjarðar og lýkur með BMX BRÓS á tennisvellinum á Víðistaðatúni kl. 16 þar sem boðið verður upp á hjólasýningu fullri af gleði og húmor.
Gleðilegt sumar kæru Hafnfirðinga og vinir Hafnarfjarðar
Heilsubærinn Hafnarfjörður fagnar sumarkomunni með sumarhátíð í Hafnarfirði. Hátíðarhöldin hefjast kl. 12 með víðavangshlaupi í hjarta Hafnarfjarðar og lýkur með BMX BRÓS á tennisvellinum á Víðistaðatúni kl. 16 þar sem boðið verður upp á hjólasýningu fullri af gleði og húmor. Fjölskyldan öll ætti að geta fundið sér skemmtun við hæfi á Sumardaginn fyrsta í Hafnarfirði í skrúðgöngu, á tónleikum, opnum húsum og fjölbreyttri fjölskyldudagskrá á Víðistaðatúni í umsjón skátafélagsins Hraunbúa. Bæjaryfirvöld og starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar óska íbúum og vinum Hafnarfjarðar gleðilegs sumars!
Dagskrá Sumardagsins fyrsta í Hafnarfirði
- 12 noon: Hafnarfjörður Cross-Country Race in the town centre of Hafnarfjörður. The warm-up will begin at Thorsplan at 12 noon. The run will follow Strandgata and will be divided into age groups after the warm-up. There is no entry fee for the run and registration is on the door. Category winners will receive trophies and all competitors will receive medals, kindly provided by the City of Hafnarfjörður. After the race, the FH athletics department will be promoting athletics on Thorsplani, where you can try long jump and shot put. Strandgata will be closed to car traffic during the run and until the parade sets off from Víðistaðatún at 13:15.
- Kl. 12-15 Opið hús hjá Púlukastfélagi Hafnarfjarðar. Verið velkomin í pílu í Píluklúbbnum, keyrt bakvið Reykjavíkurveg 64. Þar eru til dæmis fjögur spjöld sem er hægt að stilla í sitjandi hæð.
- Kl. 13-15 Badminton og borðtennis í íþróttahúsinu við Strandgötu. Gestum og gangandi er boðið að prófa badminton og borðtennis hjá Badmintonfélagi Hafnarfjarðar í íþróttahúsinu við Strandgötu.
- Kl. 13-18 Opið hús hjá Siglingaklúbbnum Þyt, Strandgötu 88. Byrjendum og vönum siglingamönnum er boðið að sigla kayak (9 ára og eldri) eða árabátum og þeir sem hafa reynslu geta siglt kænum ef veður leyfir. Í allt sumar verður opið hús hjá Siglingaklúbbnum Þyt á fimmtudögum kl. 17 til 22 og laugardögum frá kl. 10 til 13. Allir velkomnir.
- Kl. 13:15 Skrúðganga frá Thorsplani að Víðistaðatúni. Gengið verður frá Thorsplani út Strandgötu, gegnum Bæjartorg, inn Vesturgötu gegnum Merkurtorg, Vesturtorg og Flókatorg, Flókagötu og beygt inn Hraunbrún og upp Garðaveg og endað á Víðistaðatúni undir lúðrablæstri Lúðrasveitar Hafnarfjarðar.
- Kl. 13:30-16 Fjölskyldudagskrá á Víðistaðatúni í umsjón skátafélagsins Hraunbúa. Skemmtileg og fjölbreytt skátadagskrá fyrir alla fjölskylduna á Víðistaðatúni og skátamiðstöðinni Hraunbyrgi. Kassaklifur, klifurveggur, hægt að prófa að grilla sykurpúða og hike brauð við eldstæði, hoppukastalar, bátar, risastórt hengirúm og partýtjald þar sem hljómsveitin Enter name leikur nokkur lög um kl. 14. Kaffisala í Hraunbyrgi og söluhús á Víðistaðatúni þar sem til sölu verður ullarsykur, krap og popp.
- Kl. 14 Sumartónleikar með Ukulellum á Bókasafni Hafnarfjarðar. Ukulellur halda sumartónleika á bókasafninu á sumardaginn fyrsta, leika á Ukulele (ef það þarf að taka það fram) og skemmta gestum og gangandi. Hvað er betra en 13 fjórstrengdir söngfuglar með munninn fyrir neðan nefið til að fagna. Fullkomið fyrir sumarið, gleðina og bara allt! Að vanda er ókeypis inn, allir velkomnir og endalaus stemming í gangi, auk kaffis og með’ðí.
- Kl. 16:00 BMX BRÓS á tennisvellinum á Víðistaðatúni. BMX BRÓS slá botninn í dagskrána á Víðistaðatúni með áhættusömum atriðum og hjólasýningu fullri af gleði og húmor.
We look forward to celebrating the arrival of summer with you at HOME in Hafnarfjörður!