Tilnefningar í fyrirtæki ársins hjá MsH

News

Hvatningarverðlaun Markaðsstofu Hafnarfjarðar hafa verið veitt því fyrirtæki sem þótt hefur skara fram úr og vakið eftirtekt fyrir sín störf. Við hvetjum þig til að taka þátt í valinu á fyrirtæki ársins með því að senda inn tilnefningu. Hvaða hafnfirska fyrirtæki hefur lyft upp bæjaranda Hafnarfjarðar með starfsemi sinni og athöfnum og ætti að vera útnefnt Fyrirtæki ársins í Hafnarfirði?

Hvaða hafnfirska fyrirtæki verður fyrirtæki ársins 2026?

Fyrirtæki ársins í Hafnarfirði verður valið síðasta vetrardag, miðvikudaginn 22. apríl við hátíðlega athöfn í Hafnarborg. Hvatningarverðlaun Markaðsstofu Hafnarfjarðar hafa verið veitt því fyrirtæki sem þótt hefur skara fram úr og vakið eftirtekt fyrir sín störf. Við hvetjum þig til að taka þátt í valinu á fyrirtæki ársins með því að senda inn tilnefningu. Hvaða hafnfirska fyrirtæki hefur lyft upp bæjaranda Hafnarfjarðar með starfsemi sinni og athöfnum og ætti að vera útnefnt Fyrirtæki ársins í Hafnarfirði?

Nú hefur verið ákveðið að útnefna Fyrirtæki ársins ásamt því að veita viðurkenningar til nýliða eða frumkvöðuls sem hafa með starfsemi sinni eflt atvinnulíf og bæjaranda í Hafnarfirði. Eins veitir Markaðsstofan ákveðin þakkarverðlaun þegar við á.

Tilnefningar

Allir geta tilnefnt en nauðsynlegt er að láta röksemdarfærslu fylgja með. Skipuð dómnefnd fer í kjölfarið yfir tilnefningarnar og velur verðlaunahafa úr þeim hópi. Fimm fyrirtæki verða tilnefnd og sigurvegarinn verður tilkynntur við hátíðlega athöfn 22. apríl í Hafnarborg.

Form fyrir tilnefningar má finna á vef Markaðsstofu Hafnarfjarðar 

Suggestion portal