Tímabundin götulokun – Strandgata – Jólaþorpið
Jólaþorpið opnar 14. nóvember. Til að tryggja öryggi gesta verða götur í nánd við hjarta Hafnarfjarðar lokaðar á opnunartíma Jólaþorpsins. Lokunin gildir frá 14. nóvember frá kl.17:00 til 23. desember til kl.20:00.
Sækjum gleðina í Jólaþorpið
Jólaþorpið okkar Hafnfirðinga á Thorsplani opnar 14. nóvember. Til að tryggja öryggi gesta verða götur í nánd við hjarta Hafnarfjarðar lokaðar á opnunartíma Jólaþorpsins. Lokunin gildir frá 14. nóvember frá kl. 17:00 til 23. desember til kl. 20:00.
Athugið að léttlokun verður við Strandgötu 49 svo íbúar komist heim. Þung lokun verður svo á mótum Strangötu og Gunnarssunds og öryggið að fullu tryggt frá þeim hluta götunnar.
Opnunartími Jólaþorpsins er eftirfarandi:
- Föstudagar kl. 17-20
- Laugardagar kl. 13-20
- Sunnudagar kl. 13-18
- Mánudaginn 22. des kl. 17-20
- Þriðjudaginn 23. des, Þorláksmessu, kl. 13-21
- ATH. Strandgata verður opin fyrir viðbragðsaðila

Takið eftir. Bílastæðin við Linnetstíg eru opin Einnig þau hjá Firði. Hafnarfjörður bendir gestum lengra að á að ferð með strætó er ein allra besta leiðin til að njóta í Jólaþorpinu.