Application deadline

Viltu vera með á umhverfisvaktinni 2026?

Announcements

Félögum og hópum í Hafnarfirði stendur til boða að vakta umhverfið, það er taka að sér að sjá um að hreinsa skilgreind landsvæði gegn fjárstyrk fyrir framkvæmdina. Umsóknarfrestur til 22. apríl.

Vöktum saman umhverfið og tökum ábyrgð

Félögum og hópum í Hafnarfirði stendur til boða að vakta umhverfið, það er taka að sér að sjá um að hreinsa skilgreind landsvæði gegn fjárstyrk fyrir framkvæmdina. Þetta er samstarfsverkefni sveitarfélags og félagasamtaka um umhirðu bæjarlandsins. Hafnarfjarðarbær hættir aldrei á umhverfisvaktinni.

Verkefnið „UMHVERFISVAKTIN“ snýr að umhirðu og fegrun bæjarins og er markmiðið sem fyrr að efla umhverfisvitund íbúa, fegurri bær og aukin hreinsun. Félögar og hópar í Hafnarfirði geta fengið 150.000 króna fjárstyrk fyrir hreinsun á afmörkuðu svæði í tvígang yfir árið. Umsóknarfrestur til 22. apríl.

Aðeins tólf hópar komast að í hvert skipti

Hafnarfirði hefur verið skipt upp í tólf svæði. Á hverju svæði er lögð áhersla á að hreinsa rusl og drasl með aðalstígum og stofnbrautum, með lækjum/tjörnum, strandlengju, á náttúrulegum hraunasvæðum og opnum/grænum rýmum.

Þeir hópar sem fyrir valinu verða hreinsa sitt svæði tvisvar sinnum á ári, einu sinni á tímabilinu 1. maí – 1. júní og einu sinni á tímabilinu 1. – 30. september.

Umhverfisvaktin svæðaskipting

Who can be on duty?

Öllum félögum, samtökum og hópum í Hafnarfirði stendur til boða að sækja um þátttöku í Umhverfisvaktinni. Á hverju svæði er einn hópur og geta alls tólf hópar gengið til samstarfs við bæinn í verkefninu.

Við úthlutun á svæðum verður tekið tillit til samsetningar hópsins og gerðar svæðis, það er hvernig það er yfirferðar. Hver hópur skal hafa hópstjóra sem sér um samskipti við umhverfis- og skipulagssvið bæjarins og skipuleggur í samráði við það hvenær farið er í hreinsun og hvernig staðið verður að henni.

Sæki hópar skipaðir börnum eða unglingum um þátttöku (til dæmis yngri flokkar íþróttafélaga eða skátaflokkar) er sett það skilyrði að hópstjóri og ábyrgðaraðili sé fullorðinn og ennfremur að fullorðnir starfi með börnunum við hreinsunina. Ástæður þess eru fyrst og fremst öryggiskröfur þar sem hreinsunin mun fara fram þar sem hættur geta leynst nærri s.s. við umferðargötur, læk og strönd.

The accompanying information for group applications must state the following:

  • Name of the association/organisation/group
  • The main aims and purpose of the association
  • A brief report on the activities of the past 3 years
  • Number of members and age distribution (children, teenagers and adults)
  • Who will do the work (if it's a children's/youth group, who will be working with them)
  • How to use the strength
  • Any requests for areas, if any
  • Name and details of the group leader (address, telephone, email address)

Starfsmenn umhverfis- og skipulagssviðs Hafnarfjarðarbæjar hafa eftirlit með framkvæmd og vinnu á hverju svæði fyrir sig, meta hvernig staðið er að framkvæmd og koma með tillögur til úrbóta eftir því sem ástæða er til svo og sjá um að koma ruslinu til förgunar. Hægt er að fá ruslapoka hjá þjónustumiðstöð Hafnarfjarðarbæjar að Norðurhellu 2, óski hópar eftir því.

Umsóknarfrestur er til 22. apríl 2026. Umsóknir eiga að berast til: ishmael@hafnarfjordur.is

Frekari upplýsingar veitir þjónustuver bæjarins í s: 585-5500 og Ishmael David: ishmael@hafnarfjordur.is

Suggestion portal