Ráðgjafi í málefnum fatlaðs fólks og eldri borgara
Apply for a jobApplication deadline from: 07.04.2026
Application deadline: 23.04.2026
Contact: Ásta Guðrún Guðbrandsdóttir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir ráðgjafa í málefnum fatlaðs fólks og eldri borgara í stuðnings- og stoðþjónustuteymi á fjölskyldu- og barnamálasviði. Starfshlutfall er 100%.
Teymi stuðnings- og stoðþjónustu sér um almenna og sérhæfða þjónustu og ráðgjöf við aldrað fólk, fatlað fólk og fjölskyldur þeirra á grundvelli laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og almenna þjónustu við eldra fólk og aðra sem eru í þörf fyrir slíka þjónustu á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Þá er stuðningur til fatlaðra barna og fjölskyldna veittur á grundvelli laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna.
Hafnarfjarðarbær leggur áherslu á samstarf með heildarsýn að leiðarljósi sem og metnaðarfullt og faglegt starf í þágu bæjarbúa.
Key responsibilities and duties:
- Annast faglega ráðgjöf og stuðning við fötluð börn og fjölskyldur þeirra og við fullorðið fatlað fólk
- Annast faglega ráðgjöf og stuðning við eldra fólk sem er í þörf fyrir þjónustu
- Annast móttöku og greiningu umsókna um þjónustu
- Mat á þjónustuþörf í samráði við umsækjanda
- Fyrirlögn mála/umsókna fyrir teymisfundi
- Er í hlutverki málstjóra á grundvelli laga um samþætta þjónustu, þegar það á við
- Samningsgerð vegna þjónustunnar
- Sér um gerð einstaklingsbundinna þjónustuáætlana og kemur að því að skipuleggja þjónustu
- Heldur utan um og vinnur skráningar í einstaklingsmálum
- Veitir þjónustunotendum, aðstandendum og fleirum ráðgjöf í málum sem varða þjónustuna
- Hefur frumkvæði og tekur þátt í að þróa úrræði í stuðningsþjónustu
- Other tasks as per the job description and as assigned by a superior.
Educational and competency requirements:
- BA/BS gráða á sviði félags- eða heilbrigðisvísinda
- Starfsréttindi í iðjuþjálfun, þroskaþjálfun, félagsráðgjöf eða önnur framhaldsmenntun á háskólastigi á sviði félags- og heilbrigðisvísinda sem nýtist í starfi
- Þekking og reynsla af velferðarmálum sveitarfélaga
- Góð íslenskukunnátta og ritfærni
- Good computer skills
- Framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni
- Frumkvæði, skipulagshæfni, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
Launkjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Guðrún Guðbrandsdóttir, deildarstjóri stuðnings- og stoðþjónustuteymis, astagudrun@hafnarfjordur.is.
Umsóknarfrestur er til og með 23. apríl 2026.
Greinargóð ferilskrá, kynningarbréf og prófskírteini fylgi umsókn.
Attention is drawn to the policy of the City of Hafnarfjörður to equalise the gender balance in employment with the city and to ensure that its workplaces reflect the diversity of the community.