Skóla- og frístundaliði – Setbergsskóli

Apply for a job

Application deadline from: 07.05.2026

Application deadline: 21.05.2026

Contact: maria@setbergsskoli.is




<br />


Setbergsskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða

Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 430 talsins. Góður starfsandi og jákvæð samskipti einkenna starfmannahópinn og er vellíðan nemenda og starfsfólks ávallt höfð að leiðarljósi. Við skólann er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á fjölbreytt námsumhverfi, læsi, sköpun, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf. Allir nemendur í 5. – 10. bekk hafa spjaldtölvur til umráða og yngri nemendur hafa einnig aðgang að slíkum tækjum. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi sem býður upp á mikla möguleika til útiveru.

Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vellíðan og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Nánari upplýsingar um skólann og það öfluga starf sem þar er unnið er að finna á heimasíðu skólans, setbergsskoli.is.

Key responsibilities and duties:

  • Sinnir gangavörslu og eftirliti með húsnæði og búnaði, heldur göngum snyrtilegum yfir daginn 
  • Aðstoðar í matsal skólans
  • Fylgist með og aðstoðar nemendur í leik og starfi 
  • Aðstoðar við almennt bekkjarstarf undir leiðsögn kennara 
  • Other duties as described in the job description

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla og áhugi af starfi með börnum
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta í riti og tali, að lágmarki C1 samkvæmt ETM Sjálfsmatsramma (coe.int)

A clean criminal record is required upon employment.

Ferilskrá og kynningarbréf fylgi umsókn.

Umsóknarfrestur er til og með 21. maí 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri, í síma 5651011 eða í gegnum netfangið maria@setbergsskoli.is.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Attention is drawn to the policy of the City of Hafnarfjörður to equalise the gender balance in employment with the city and to ensure that its workplaces reflect the diversity of the community.


Other jobs