Nýr kafli hefst – Opnunarhátíð Bókasafns Hafnarfjarðar

News

Opnunarhátíð nýja bókasafnsins í Firði verður haldin fimmtudaginn 13. ágúst milli kl. 16-18. Nú er hægt að taka forskot á sæluna, því safnið opnaði dyrnar fyrst í morgun.

Nýja bókasafnið okkar í Firði

Fólk streymdi að strax í morgun þegar Bókasafn Hafnarfjarðar opnaði nýtt húsnæði sitt í fyrsta sinn. Fimmtudaginn 13. ágúst verður formleg opnun nýja bókasafnsins okkar í Firði – og það aðeins þremur mánuðum frá því að bærinn fékk lyklavöldin að húsnæðinu. Allar bækur eru komnar í hillur. Safnið er glæsilegt.

Húsnæði nýja bókasafnsins er tæpir 1.700 fermetrar að stærð. Þar af eru um 550 fermetrar í nýbyggingu Fjarðar við Strandgötu 26-30. Breytingarnar og uppbyggingin við Fjörð eru mestu framkvæmdir sem átt hafa sér stað í miðbæ Hafnarfjarðar í áratugi.

 

Nýja bókasafn Hafnarfjarðar er nútímasamkomuhús fyrir Hafnfirðinga. Og hvað finnum við á nýja bókasafninu?

  • Næðisrými
  • Hljóðver
  • Raddrými fyrir podcöst
  • Fundarherbergi
  • Hópaherbergi
  • Samkomusalur
  • Barnahorn
  • Lærdómsrými

Og það sem við finnum fyrst og fremst er góður andi, gott fólk sem mætir okkur og aðstoðar í þessum nýja töfraheimi okkar sem er umkringdur bókum.

Play

Bókasafnið hefur þegar opnað og því hægt að taka forskot á sæluna og sjá síðustu hnútana hnýtta áður en safnið verður opnað formlega

  • Where? Bókasafn Hafnarfjarðar, 2. hæð í Firði
  • When? Fimmtudagurinn 13. ágúst frá kl. 16-18 (safnið er opið til 19)
  • Hvað? Sérstök opnunarhátíð (opið í Firði til kl. 19)

All are welcome.

Suggestion portal