Norðurgarður vígður – Listaverk í nýju ljósi
Um 80 voru viðstödd þegar Norðurgarður á Norðurbakka var formlega vígður í gærkvöldi. Vígslan markaði lok umfangsmikilla endurbóta á garðinum. Harðviðarklæðning, setpallar og útsýnissvæði munu draga okkur Hafnfirðinga að hafinu til að njóta.
Norðurgarðurinn er tilbúinn
Um 80 voru viðstödd þegar Norðurgarður var formlega vígður í gærkvöldi. Vígslan markaði lok umfangsmikilla endurbóta á garðinum. Harðviðarklæðning, setpallar og útsýnissvæði munu draga okkur Hafnfirðinga að rótum okkar – Hér í firðinum fagra. Nú höfum við eignast útsýnispall yfir höfnina og Faxaflóa.
Lúðvík Geirsson hafnarstjóri sem hélt tölu um framkvæmdina í gær áður en hann rétti Þránni Haukssyni hönnuði verksins keflið til að kveikja á 5 metra vitanum við enda hafnargarðarins. Hann sagði Þráinn hafa hannað og þróað þessa perlu á síðustu 20 árum.
Já, Norðurgarður hefur verið styrktur með grjótvörnum og hækkaður um rúma tvo metra. Frágangi á yfirborði og tengingum við Strandstíginn er nú lokið, ásamt uppsetningu lýsingar og nýs innsiglingarljóss.
Tillaga Landslags varð fyrir valinu
Teiknistofan Landslag á tillöguna að yfirborði og umhverfi Norðurgarðs sem hafnarstjórn valdi til útfærslu. Hafnarstjórn leitaði eftir tillögum frá þremur arkitektastofum sumarið 2024. Áhersla var lögð á gott aðgengi almennings út á garðinn, aðstöðu til útsýnis og veiða og útfærslu innsiglingarljóss á enda hans.
Hönnunarferlið hafði verið sett af stað fyrr sama ár. Hafnarstjóra var falið að undirbúa það í janúar og hafnarstjórn samþykkti í febrúar að kalla eftir tillögum að yfirborðsfrágangi í samstarfi við skipulagssvið bæjarins.
Uppbygging í áföngum
Endurbæturnar eru hluti af uppbyggingu Norðurbakkasvæðisins sem hefur staðið yfir í nokkrum áföngum. Hafnarstjórn samþykkti að bjóða út grjótvörn við Norðurbakka í ágúst 2020. Landslag og verkfræðiþjónustan Strendingur unnu þá að undirbúningi og hönnun í samstarfi við Hafnarfjarðarhöfn og umhverfis- og skipulagssvið bæjarins.
Vinna við grjótvörn Norðurbakka var komin af stað í mars 2021. Endurbygging og hækkun Norðurgarðs voru fyrirhugaðar í framhaldinu.
Grjótfyllingar utan við Norðurgarð undirbjuggu uppsteypu hans sem hófst sumarið 2025. Styrkja þurfti undirstöðuna með varúð vegna veiks botns undir garðinum. Fremsti hluti hans hafði sigið verulega sumarið 1945 og því hafði garðurinn verið lægri þar um áratuga skeið.
Lokafrágangur tók við á þessu ári með smíði timburdekks og setpalla, bættri aðkomu og uppsetningu lýsingar. Garðurinn býður nú upp á aðstöðu til að staldra við, njóta útsýnisins og fylgjast með lífinu við höfnina.
Fjöldi fyrirtækja og sérfræðinga hefur komið að verkefninu. Auk Landslags má nefna Batteríið arkitekta, verkfræðistofuna Strending, smíðafyrirtækið Galdraöfl, rafverktakann RAFX, ljósahönnunarfyrirtækið Liska, Vélsmiðju Konráðs Jónssonar, Hagtak og Gröfu og grjót. Starfsfólk Hafnarfjarðarhafnar og Hafnarfjarðarbæjar hefur jafnframt komið að hönnun, framkvæmdum og uppbyggingu svæðisins.
Já, við höfum eignast frábæra perlu við enda hafnargarðsins. Sjón er sögu ríkari.